Súru og sætu kökurnar

Þorgeir Tryggva­son, Toggi, mun sinna bókaum­fjöllun fyrir Kjarnann fram að jólum en margar bækur eru að koma út þessa dag­ana. Jóla­bóka­flóðið nær svo hámarki í des­em­ber.

Höfundur: Finnbogi Her­manns­son

Illur fengur

Útgef­andi: Skrudda

Efn­is­lega sver þessi litla bók sig í ætt við hina stór­merku hefð sagna­þátt­ar­ins. Sann­sögu­legt efni (held ég) búið í hæfi­lega list­rænan bún­ing með Íslend­inga­sög­urnar sem fyr­ir­mynd. Brynjólfur frá Minna-Núpi og Gísli Kon­ráðs­son mega heita mót­un­ar­menn forms­ins, Magnús Jónsson frá Syðra-Hóli, Jón Helgason rit­stjóri og fleiri spor­göngu­menn.

Finnbogi Her­manns­son er ekk­ert víðs­fjarri þessum skóla, en færir sig þó tals­vert nær aðferðum nútíma­skáld­sög­unnar í með­ferð sinni á sannri (að mestu, að ég held) sögu af sauða­þjófa­fjöl­skyldu sem fær að athafna sig árum saman næsta óáreitt á Skarðs­strönd­inni á milli­stríðs­ár­unum.

Þetta eru stór­skrítnar aðstæður. Allir vita hvað hyskið (afsakið orð­bragðið) á Hleina­bergi aðhefst, en allar aðgerðir stranda á ein­stak­lega lötum og/eða van­hæfum sýslu­manni. Eða kannski bara spilltum, þó sú skýr­ing bók­ar­innar á aðgerða­leysi hans í mál­inu að hann hafi munað svona mikið um atkvæði heim­il­is­fólks­ins, hljómi í hæpn­ara lagi.

En alla­vega, þegar Hleina­bergs­menn færa út kví­arnar og brjót­ast inn í kaup­fé­lagið grípa sveit­ungar til ísmeygi­legra ráða til að koma þeim undir manna hendur í höf­uð­staðnum. Þar hefst kjarni frá­sagn­ar­innar. Reyndar flæm­ist hún síðan á aðra bæi í sveit­inni með laus­leg tengsl við meg­in­þráð­inn.

Aðallega fylgj­umst við með Hleina­bergs­fólk­inu á leið í gegnum kvörn rétt­vís­innar og smám saman skiljum við meira af atferli þeirra. Já og fáum mynd af rétt­ar­fari tíma­bils­ins, smá­þef af borg­ar­líf­inu með augum heim­ótt­ar­legra sveita­manna og síðar lít­ils­háttar inn­sýn í lífið á Litla-Hrauni í árdaga fang­els­is­ins.

Þetta er allt gott og blessað, og gott fyrir sinn hatt. En hangir ekki alveg saman.

Ég veit það ekki, kannski hefði línu­legri frá­sögn í anda sagna­þátta­hefð­ar­innar hentað efni­viðnum betur. Ég hefði alveg verið til í skýr­ari grein­ar­gerð fyrir upp­runa þessa fólks, sem og útlistun á glæpum þess sem ekki væri bundin í klafa end­ur­lits og ann­arra kenja forms­ins.

Alla vega þvælist frá­sagn­ar­hátt­ur­inn svo­lítið fyrir Finnboga - erfitt er að ná skar­pri sýn á hvað eru aðal­at­riðn, og útund­an­sér­hlaup á aðra bæi virka fyrst og fremst se útúr­dúrar.

Tilþrif í að lita mál­farið og fyrnska í orða­vali er heilt yfir við­eig­andi í svona efni og frá­sagn­ar­gerð, en stundum þykir mér Finnbogi þó seil­ast of langt í sér­visk­unni.

En þetta er mergjuð saga sem liggur til grund­vallar. Stríðið milli for­tíðar og nútíðar fær á sig skemmti­legan fárán­leika­blæ þar sem sauða­þjófn­aður er ýmist séður með augum gamla sam­fé­lags­ins þar sem hann var verstur glæpa, og hins nýja þar sem alvar­leiki hans er síst meiri en að brjót­ast inn og stela kaffi­baunum af kaup­fé­lag­inu.

Sagan sú kemst til skila, þrátt fyrir kenjar sögu­manns­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár