Pæling dagsins: Svona heldur „vel í lagt“ hjá Vigdísi

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis og þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins, lét hafa eftir sér á dög­unum að það væri auð­vitað „vel í lagt“ að láta Land­spít­al­ann hafa einn millj­arð til við­bótar við það sem þegar hafði verið áformað í fjár­laga­frum­varp­inu. Óháð því, að þetta við­bót­ar­fram­lag er alls ekki nóg að mati Páls Matth­í­as­sonar, for­stjóra spít­al­ans, þá eru þetta athygl­is­verð orð að mörgu leyti hjá Vigdísi. Hún fór mik­inn síð­ast­liðið sumar þegar hún tjáði sig um hag­ræð­ing­ar­hug­myndir svo­nefnds hag­ræð­ing­ar­hóps stjórn­valda, þar sem voru auk hennar Ásmundur Einar Daðason Fram­sókn­ar­flokki, Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir Sjálf­stæð­is­flokki og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son Sjálf­stæð­is­flokki. Þar var leið­ar­stefið, út á við, að það þyrfti að fara miklu betur með tak­markað fé rík­is­sjóðs, stjórn­völd gætu ekki leyft sér hvað sem er. Þess vegna mætti kannski segja að það sé frekar „vel í lagt“ að eyða tæp­lega 80 millj­örðum úr rík­is­sjóði í að leggja inn á einka­rétt­ar­legar og per­sónu­legar fast­eigna­skuldir sumra lands­manna. Dr. Oddgeir Ottesen, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem tætti niður hina svoköll­uðu leið­rétt­ingu í grein í Morg­un­blað­inu og lýsti henni sem tómri dellu, gæti kannski hitt Vigdísi á fundi og bent henni á að mokst­ur­inn á tæp­lega 80 millj­örðum úr rík­is­sjóði væri svona heldur „vel í lagt“...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár