Framkvæmdir gætu tvöfaldað íbúafjölda Garðabæjar á 16 árum

Í und­ir­bún­ingi er að byggja um fimm þús­und íbúðir fyrir um 175 millj­arða króna í Garðabæ. Þetta mun rúm­lega tvö­falda íbúa­fjölda sveita­fé­lags­ins úr um 14 þús­und nú í um 30 þús­und árið 2030. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Í blað­inu er rætt við Gunnar Ein­ars­son, bæj­ar­stjóra í Garðabæ, sem veltir því fyrir sér hvort eft­ir­spurn sé eftir öllum þessum íbúðum sem stefnt er að því að byggja. „Nú er rosa­lega mikið í píp­un­um og spurn­ing hvort eft­ir­spurn sé eft­ir þessu öllu. Verk­tak­ar eru ekki að tala sam­an. Þeir eru hver á sín­um báti. Það er eins með sveit­ar­fé­lög­in,“ seg­ir Gunn­ar. Hann kallar eftir meiri sam­vinnu milli sveita­fé­laga.

[caption id="attachment_13182" align="align­right" width="150"] Gunnar Ein­ars­son.[/caption]

Stefnt er að upp­bygg­ingu á fimm svæðum. Samkvæmt fyr­ir­liggj­andi áætl­unum á að byggja allt að 1.600 íbúða­ein­ingar í Urriða­holti (4-5.000 manns), 700 íbúða­ein­ingar í Hnoðra­holti (um 2.000 manns) auk þess sem einka­að­ilar hafa hug­myndir um að byggja allt að 630 íbúða­ein­ingar í Set­bergs­land­inu (um 2.000 manns). Ramma­skipu­lag var á sínum tíma gert fyrir um 8.000 manna byggð í Garð­ars­holti á Álfta­nesi en það er komið á byrj­un­ar­reit eftir sam­ein­ingu Álfta­ness við Garðarbæ og að lokum eru áform um að þétta byggð á Álfta­nesi í Breiðu­mýri, Kirkju­brú og Sveinskoti með alls um 140 ein­ingum.

Alls gætu um 17 þús­und manns búið á þessum fimm svæðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár