Landsbankinn taldi ekki rétt að selja hlut í Borgun í opnu ferli

Stjórn­endur Lands­banka Íslands töldu ekki rétt að selja 31,2 pró­sent hlut í Borgun í opnu og gagn­sæju ferli, eins og reglur bank­ans gera ráð fyrir. Bankinn til­tekur eft­ir­taldar ástæður fyrir því í til­kynn­ingu á vef­síðu bank­ans: „Einn helsti keppi­nautur Lands­bank­ans er meiri­hluta­eig­andi félags­ins og jafn­framt einn stærsti við­skipta­vinur þess, sem gerir Lands­bank­anum erfitt um vik, að vinna að sölu og afhend­ingu gagna um félagið. Lands­bank­inn hefur haft mjög tak­mark­aðan aðgang að Borgun eða upp­lýs­ingum um fyr­ir­tækið vegna sáttar sem gerð var við Sam­keppn­is­eft­ir­litið árið 2008. Því auð­veld­aði þátt­taka stjórn­enda í kaup­enda­hópnum mögu­legum kaup­endum að leggja mat á rekst­ur­inn og afla sér nauð­syn­legra upp­lýs­inga. Eðli máls­ins sam­kvæmt tóku samn­ingar mið af þess­ari stöðu aðila,“ segir til­kynn­ing­unni.

Ekkert er þó nákvæmar rakið í til­kynn­ing­unni, en það er tekið fram að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi þrýst á um að gerðar yrðu breyt­ingar á eign­ar­hlut þeirra í Borgun.

Eins og Kjarninn greindi frá í frétta­skýr­ingu í gær, keypti Eign­ar­halds­fé­lag Borgunar slf. hlut­inn í Borgun eftir að Magnús Magn­ús­son, for­svars­maður félags­ins, hafði sett sig í sam­band við Lands­bank­ann og viðrað hug­myndir um kaup á hlutnum. Þetta stað­festi Magnús í sam­tali við Kjarnann.

Kaupin voru meðal ann­ars rædd á Alþingi í dag þar sem Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, furð­aði sig á aðferðum Lands­bank­ans við sölu á hlutnum og sagði þær ekki til fyr­ir­myndar.

Kaupin fóru fram bak við luktar dyr, þar sem eng­inn annar en hóp­ur­inn sem sýndi áhuga á kaup­unum fékk að reyna að kaupa hlut­inn.

Stofnfé Eign­ar­halds­fé­lags Borgunar nemur 500 þús­und krónum sem skipt­ist í þrjá flokka, 100 þús­und í A flokki, 395 þús­und í B flokki og fimm þús­und í C flokki. Í A og B flokki eru eig­endur stofn­fjár með tak­mark­aða ábyrgð en í C flokki er ótak­mörkuð ábyrgð.

B flokkurinn langstærstur


Einu eig­endur A flokks stofn­fjár er félagið Orbis Borgunar slf. Eigendur B flokks hluta­bréfa Eign­ar­halds­fé­lags Borgunar eru þrettán tals­ins, sam­kvæmt samn­ingi um sam­lags­fé­lagið sem Kjarninn hefur undir höndum. Stærsti ein­staki eig­and­inn er Stálskip ehf., þar sem Guðrún Lár­us­dóttir hefur stýrt ferð­inni í ára­tugi, með 29,43 pró­sent hlut. Þá á félagið P126 ehf. 19,71 pró­sent hlut, en eig­endur þess eru Einar Sveins­son og sonur hans Benedikt Ein­ars­son, í gegnum móð­ur­fé­lagið Charamino Holdings Limited sem skráð er á Lúx­em­borg.

Þá á Pétur Stef­áns­son ehf. 19,71 pró­sent hlut, en for­svars­maður þess var Sigvaldi Stef­áns­son á stofn­fundi. Sam­an­lagður eign­ar­hlutur þess­ara þriggja stærstu eig­enda nemur 68,85 pró­sentum af B flokki stofn­fjár.

Á eftir þessum stærstu eig­endum kemur félagið Vetr­ar­gil ehf. með 5,14 pró­sent hlut og TD á Íslandi ehf. 5,15 pró­sent. Afgang­inn eiga AB 426 ehf (2,86%)., þar sem Sigurþór Stef­áns­son er í for­svari, Eggson ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta Geir­finns­dóttir er í for­svari, Bústoð ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta er einnig í for­svari, Fram­tíð­ar­brautin ehf. (4,43%), þar sem B. Jakobína Þrá­ins­dóttir er í for­svari, Iðu­steinar ehf., þar sem Magnús Pálmi Örn­ólfs­son er í for­svari, Holt og hæðir ehf., þar sem Sigríður V. Hall­dórs­dóttir er í for­svari, Spectabilis ehf., þar sem Óskar V. Sig­urðs­son er í for­svari, og Mens Manus ehf., þar sem Hjalti Þ. Krist­jáns­son er í for­svari.

Stofnfundur í október


Samkvæmt stofn­fund­ar­gerð félags­ins, frá 23. októ­ber síð­ast­liðnum, voru fjórir ein­stak­lingar mættir fyrir hönd félag­anna Orbis Borgunar slf. og Orbis GP ehf. Þau félög eru þau einu sem eru í eig­endur stofn­fjár í C flokki með ótak­mark­aða ábyrgð. Þau sem mættu á fund­inn fyrir hönd félag­anna voru Magnús Magn­ús­son, Óskar V. Sig­urðs­son, Jóhann Bald­urs­son og Margrét Gunn­ars­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár