Gott er að borða gulrótina ...

Þorgeir Tryggva­son, Toggi, mun sinna bókaum­fjöllun fyrir Kjarnann fram að jólum en margar bækur eru að koma út þessa dag­ana. Jóla­bóka­flóðið nær svo hámarki í des­em­ber.

Höfundur: Jónína Leós­dóttir

Bara ef …

Útgef­andi: Mál og Menning

Afþrey­ing­ar­bók­menntir njóta vin­sælda. Skárra væri það nú. Merki­legt samt hvað teg­undir þeirra eru fábreyttar, alla­vega þeirra sem koma úr íslenskum pennum. Krimmar lang­fyr­ir­ferð­ar­mestir að sjálf­sögðu, og ein og ein fantasía, hroll­vekja og skvísu­bók flýtur með. En létt­meti án morða, galdra­karla og skó­blætis er ekki á hverju strái.

Hér kemur samt ein. Það deyr eng­inn í Bara ef … og hún segir ein­fald­lega frekar hvers­dags­lega sögu af svipt­inga­sömum dögum í lífi til­tölu­lega venju­legrar stór­fjöl­skyldu sem stendur frammi fyrir afleið­ingum skyndi­á­kvörð­unar hins hvat­vísa „ætt­föður“ sem hefur boðað skilnað frá konu sinni með fullt næsta her­bergi af gestum í rogastans­g­illi* í til­efni af sex­tugs­af­mæli kalls­ins. Smám saman kemur í ljós að hann á ekki alls­kostar skap með sinni katt­þrifnu, heilsu­m­eð­vit­uðu og gleði­hressu eig­in­konu. Auk þess er hún flat­brjósta og gott ef ein­hver hlið­ar­spor hafa ekki verið stigin vegna freist­inga af því tag­inu.

Fleira er í gangi. Dóttir hjón­anna er að reyna að fá mann­inn sinn til að bæta barni við þau þrjú sem hann á með þung­lyndri fyrri konu sinni. Hún svífst einskis í þessu áformi. Eða það höldum við, og hann.

Sagan fjallar um þetta fólk og þessi vesen. Lipur og lát­laus frá­sagn­ar­háttur Jónínu fellur vel að við­fangs­efn­inu. Per­sónugall­er­íið er lit­ríkt og vel teiknað innan þess raun­sæ­is­ramma sem formið kallar á.

Samt tekst þetta ekki alveg. Skemmti­bók verður að vera skemmti­leg, og Bara ef … verður aðeins þreyt­andi til lengdar.

Vandi hennar er tví­þættur:

a) end­ur­tekn­ing­arnar í frá­sögn­inni. Þegar ég var búinn að fá mig meira en fullsadd­ann af lýs­ingum á deilum hjón­anna um heilsu­sam­legt vs. hedónískt líf­erni átti Jónína enn eftir að mjólka það efni bara tals­vert.

b) hvernig plottin sem eiga drífa frá­sögn­ina áfram fletj­ast út á enda­sprett­inum. Það vantar aðeins meiri djörf­ung í að láta ákvarð­anir hafa afleið­ingar, eða alla­vega leiða atburð­ina til lykta á hug­vit­sam­legri hátt. Mun samt ekki nefna nein dæmi, fólk þarf að lesa sjálft.

Það er alls ekki leið­in­legt að deila með fjöl­skyldu bók­ar­innar þeim klukku­stundum sem það tekur að lesa bók­ina. Vafa­laust finna margir sam­hljóm í hinum ýmsu vand­kvæðum fólks­ins. Þau eru svo sann­ar­lega eins og við flest og bregð­ast að mestu við aðstæðum sínum á trú­verð­ugan hátt. Fyrir minn smekk hefði hefði Bara ef ... samt þurft að vera aðeins skemmti­legri, óvænt­ari, rök­rétt­ari, mis­kunn­ar­laus­ari. Eða helst allt þetta.

  • Þessi þýð­ing Stuð­manna á „Surprise Party“ er bara of góð til að fara ekki í almenna notkun.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár