Framkvæmdastjóri hjá Alvogen keypti Sunnuflatarhöllina

Halldór Krist­manns­son, fram­kvæmda­stjóri hjá lyfja­fyr­ir­tæk­inu Alvogen, hefur keypt ríf­lega 930 fer­metra fok­helt ein­býl­is­hús við Sunnu­flöt 48 í Garðabæ af Lands­bank­anum, fyrir 53 millj­ónir króna. Húsið hefur verið til tölu­verðar umfjöll­unar í fjöl­miðlum, en það vakti fyrst athygli árið 2009 í kjöl­far banka­hruns­ins og hefur stundum verið kallað „2009-martröðin".

Samkvæmt frétt Vísis frá því í sept­em­ber var upp­haf­lega settur 93 millj­óna króna verð­miði á húsið, en upp­sett verð hefur farið ört lækk­andi síðan. Í frétt Vísis frá því í sept­em­ber kemur fram að húsið var verð­lagt á sex­tíu millj­ónir þá.

Fyrri eigandi lét stækka húsið um röska 330 fermetra


Áður en Lands­bank­inn leysti húsið til sín var það í eigu fast­eigna­sal­ans Arnars Sölva­sonar, sem keypti teikn­ingu að hús­inu og lóð­ina við Sunnu­flöt á sjö­tíu millj­ónir króna árið 2007. Arki­tekta­stofan Gassa gerði teikn­ing­una, en þá átti húsið að vera 600 fer­metrar. Þáver­andi eig­andi lóð­ar­innar hafði háleit­ari hug­myndir um stærð þess og gerð, og fékk arki­tekta­stof­una til að bæta meðal ann­ars lík­ams­rækt­ar­sal, sund­laug og heitum pottum við teikn­ing­una. Húsið stækk­aði við það um ríf­lega 330 fer­metra.

Allt kom þó fyrir ekki, og hefur húsið staðið óklárað til sölu síð­ustu ár, en það var um tíma aug­lýst hjá fimm mis­mun­andi fast­eigna­sölum.

[caption id="attachment_13090" align="aligncenter" width="376"] Svona lítur Sunnu­flat­ar­höllin út í dag.[/caption]

Ætlar að minnka húsið


Í sam­tali við Kjarnann segir Halldór Krist­manns­son að hann og fjöl­skylda hans ætli sér að búa í hús­inu. „Mér bauðst að kaupa húsið á mjög góðu verði, en við ætlum okkur að minnka það. Í því er rými sem var ætlað var undir spa og sund­laug og eitt­hvað álíka, sem við höfum ekki áhuga á. Þetta er góð fjár­fest­ing, fyrir ein­býl­is­hús sem er fok­hellt í dag.“

Aðalhæð húss­ins er um 500 fer­metrar að stærð, en Halldór hyggst ekki nota um helm­ing af kjall­ara húss­ins. Hann vill ekki gefa upp hvað hann áætlar að kosti að gera húsið íbúð­ar­hæft. „Við ætlum að nýta efri hæð húss­ins, og nú er unnið að því að minnka neðri hæð­ina í sam­vinnu við bygg­inga­mála­yf­ir­völd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár