Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins staðfest í Hæstarétti

Hæsti­réttur Íslands féllst í dag, með dómi sínum, á nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála hafði áður stað­fest, að sekta bæri móð­ur­fé­lag Síldar og fisks ehf. og Matfugls ehf. um átta­tíu millj­ónir króna fyrir ólög­mætt lóð­rétt sam­ráð félag­anna við Bónus um smá­sölu­verð og afslátt af því í versl­unum mat­vöru­keðj­unnar. Samkvæmt nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem er síðan árið 2011, var mark­mið sam­ráðs­ins að draga úr virkri sam­keppni sem hafi orðið raunin. Hæsti­réttur sá ekki heldur til­efni til að hrófla við sekt­ar­fjár­hæð­inni.

Greint er frá nið­ur­stöðu máls­ins fyrir Hæsta­rétti Íslands á heima­síðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Forsögu máls­ins má rekja til rann­sóknar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á svoköll­uðum for­verð­merk­ingum á kjöt­vörum, en um ára­bil tíðk­að­ist að kjöt­vinnslu­fyr­ir­tæki verð­merktu vörur sínar áður en þær voru teknar til sölu í versl­unum. Árið 2010 gerði Sam­keppn­is­eft­ir­litið sátt við Haga, sem rekur versl­anir undir merkjum Bónus, og sex kjöt­vinnslu­fyr­ir­tæki vegna máls­ins, þar sem umrædd fyr­ir­tæki við­ur­kenndu brot sín, greiddu sektir og skuld­bundu sig til að láta af for­verð­merk­ingum á kjöt­vörum.

Síld og fiskur og Matfugl vildu hins vegar ekki gera sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið, sem leiddi til þess að eft­ir­litið tók ákvörðun um brot fyr­ir­tækj­anna árið 2011 og sektaði móð­ur­fé­lag þeirra, Langasjó ehf., um 80 millj­ónir króna. Hér­aðs­dómur felldi úr gildi áður­nefndan úrskurð áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála, á þeim rökum að máls­með­ferð gagn­vart Langasjó hefði verið ábóta­vant og Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu hefði verið óheim­ilt að leggja stjórn­vald­sekt á móð­ur­fé­lagið vegna brota dótt­ur­fé­lag­anna.

Með dómi sínum hefur Hæsti­réttur Íslands þar með snúið dómi hér­aðs­dóms, en rétt­ur­inn telur að ekki hafi verið brotið gegn máls­með­ferð­ar­reglum stjórn­sýslu­réttar og að Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu hafi verið heim­ilt að leggja stjórn­valds­sekt á Langasjó ehf.. Auk þessa var fyr­ir­tækið og dótt­ur­fé­lög þess dæmd til að greiða Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu fjórar millj­ónir króna í máls­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár