Lambið leiðir sig til slátrunar

Þorgeir Tryggva­son, Toggi, mun sinna bókaum­fjöllun fyrir Kjarnann fram að jólum en margar bækur eru að koma út þessa dag­ana. Jóla­bóka­flóðið nær svo hámarki í des­em­ber.

Höfundur: Heiðrún Ólafs­dóttir

Leið

Útgef­andi: Sæmundur

„Ég gróf fugl­inn uppi við bústað. Vitiði hvort ein­hver hefur verið þar um helg­ina, það var svo mikil aska í arn­inum?“ spyr hún í því sem hún hellir kaffi­boll­ann fullan af mjólk og býst til að skera niður vín­ar­brauðs­lengju.

„Já, ég var þar aðeins í gær“ svara ég, að brenna eigur mínar.“

Við hlæjum öll. Stundum er best að segja bara satt, þá grunar engan neitt.

Nóvellur. Er það eitt­hvað? Allavega birt­ast þær ein af annarri á útgáfu­listum for­lag­anna þessi árin. Og vekja athygli. Bara í fyrra fengum við Börnin í Dimmuvík, Vince Vaughan í skýj­unum og svo að sjálf­sögðu hinn róm­aða Mána­stein.

Hann er greini­lega ekki lengur í gildi, hinn bráð­fyndni for­máli Stephens King við nóv­ellu­safn sitt, Differ­ent Seasons, þar sem hann lýsir skelf­ingu for­leggjara síns þegar hann mætir með fjórar sögur sem hvorki eru smá­sögur (þekkt stærð) né full­vaxnar skáld­sögur. Eða kannski „full-vaxnar“ í til­felli rit­ræpu­meist­ar­ans mikla.

Neinei, nóv­ellur koma út og ná til sinna. Enda er þetta skemmti­legt form og örugg­lega hægt að ríf­ast dag­inn langan um hvort það er auð­veld­ara en skáldsagan og erf­ið­ara en smá­sagan eða öfugt. Sleppum því.

Leið, frumraun Heiðrúnar Ólafs­dóttur í sagna­gerð, alla­vega útgef­inni, er jafn­framt loka­verk­efni hennar í námi í skap­andi skrifum. Og það finnst aðeins. Allavega var mig farið að gruna það áður en ég fékk það stað­fest hjá Gúgul frænda. Heiðrún er svo­lítið að hnykla frá­sagn­ar­tækni­vöðvana í þess­ari knöppu en dramat­ísku sögu af und­ir­bún­ingi ungrar konu fyrir sjálfs­morð sitt.

Það er líka smá „ungskáld­legur“ andi yfir efni­viðnum sjálfum, eða því hvað Heiðrún fer örlát­lega með hann. Brjóstakrabbi, fíkni­efni, blóð­ugt heim­il­is­of­beldi, harð­kjarna­kyn­líf, for­seta­fram­boð … Það er engin logn­molla á þessum 140 A6-síðum þar sem síð­ustu stundir Signýjar flétt­ast saman við end­ur­lit yfir heldur nöt­ur­lega en svo sann­ar­lega sögu­legu ævi.

Skoski sál­fræð­ing­ur­inn og rebell­inn R.D. Laing hélt á lofti þeirri hug­mynd að í sjúkri fjöl­skyldu lendi einn með­lim­ur­inn einatt í að bera sjúk­dóms­ein­kennin og í þess­ari er það Signý. Hún hefur brynjað sig kald­hæðni og hörku, tamið sér skeyt­ing­ar­leysi um sjálfa sig. En allt kostar og nú blasir gjald­þrotið við. Aðrir í fjöl­skyld­unni sigla öllu lygn­ari sjó, að ein­hverju leyti á hennar kostnað.

Þó svo hægt sé að greina ein­hver frumraun­ar­ein­kenni á Leið, eins og ég var að monta mig af að hafa gert hér ofar, þá dregur það síður en svo úr áhrifa­mætt­inum. þetta er sterk og vel smíðuð saga, rödd og per­sónu­sköpun Signýjar sann­fær­andi og nær­göngul í sínum kald­rana og nagla­skap.

Við bjóðum Heiðrúnu Ólafs­dóttur vel­komna á svið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár