Tennurnar dregnar úr Skattrannsóknarstjóra

Verði fjár­heim­ildir til emb­ættis skatt­rann­sókn­ar­stjóra ekki auknar á næsta ári, mun emb­ættið neyð­ast til að segja upp starfs­mönnum. Í sam­tali við Frétta­blaðið segir Bryndís Krist­jáns­dóttir, skatt­rann­sókn­ar­stjóri, að fjár­fram­lög til emb­ætt­is­ins eigi að lækka um tæp­lega fjöru­tíu millj­ónir á milli ára. Það þýði að þá þurfi að fækka um fimm til sex starfs­menn hjá emb­ætt­inu, en þar starfa 29 manns í dag. „Ég er búin að fara á fund fjár­laga­nefndar. Málið er ekki útkljáð en mér heyr­ist að það eigi ekki að breyta þessu,“ er haft eftir skatt­rann­sókn­ar­stjóra í Frétta­blað­inu.

Þá lýsir skatt­rann­sókn­ar­stjóri áhyggjum sínum af því hvernig emb­ættið eigi að hafa burði til að vinna úr upp­lýs­ingum um skattaund­an­skot Íslend­inga erlendis, verði tekin sú ákvörðun að kaupa upp­lýs­ing­arnar eins og hefur verið til umræðu. Embættið sendi fjár­mála­ráðu­neyt­inu í haust grein­ar­gerð, eftir að hafa farið yfir sýn­is­horn af gögnum um hund­rað Íslend­inga sem hafa verið boðin til kaups, sem benda til að skattaund­an­skot hafi verið stunduð.

Starfs­hópur sem fjár­mála­ráð­herra skip­aði á dög­unum, skoðar hvort laga­legar hindr­anir séu á kaupum á skatta­gögn­unum og hvort veita eigi sak­ar­upp­gjöf vegna und­an­skota, greiði menn skatta­skuld sína.

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri segir í sam­tali við Frétta­blaðið að sak­ar­upp­gjöf hafi skilað góðum árangri í nágranna­löndum og þeim löndum sem Íslend­ingar vilji bera sig saman við. „Menn fá upp á yfir­borðið tekjur og eignir sem eru duldar gegn því að refs­ingar falli niður eða verði með ein­hverjum hætti lægri en ella. Það er hins vegar umdeilt hvort veita eigi ein­hverjum sak­ar­upp­gjöf sem aðrir fá ekki. Það eru ýmis sjón­ar­mið uppi um þessi mál,“ segir Bryndís Krist­jáns­dóttir í Frétta­blað­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár