Pæling dagsins: Hvaða flokkur mun bjóða 100 prósent lán?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Hagdeild Lands­bank­ans spáir því að fast­eigna­verð muni hækka um 24 pró­sent á næstu þremur árum, og fólk sem er að kaupa sínu fyrstu íbúð muni lenda í enn meiri erf­ið­leikum við að fjár­magna kaupin heldur en nú. Þetta kemur bréf­rit­ara ekki mikið á óvart í ljósi mats ýmissa aðila á fram­tíð­ar­horfum á fast­eigna­mark­aði. Það er ennþá mikil eft­ir­spurn eftir litlum og með­al­stórum íbúðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, árgangar sem eru að koma út á markað eru stórir og þá er bygg­inga­kostn­aður ennþá hár, yfir mark­aðs­verði á sumum stöðum. Áhrifin af leið­rétt­ing­unni svoköll­uðu koma svo til við­bótar. Í næstu kosn­ingum gæti kapp­hlaup stjórn­mála­flokk­anna verið um það, hvaða flokkur býður hæsta veð­hlut­fallið í íbúða­kaupum, kom­ist hann til valda. Þá er lík­legt að neyð­ar­ópin hjá stórum hópi ungs fólks verði það há, að stjórn­mála­flokk­arnir muni bregð­ast við. Kannski mun ein­hver bjóða 100 pró­sent lán, hver veit...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár