Spá 24 prósent hækkun fasteignaverðs á þremur árum

Hag­fræði­deild Lands­banka Íslands spáir því að fast­eigna­verð muni hækka um 24 pró­sent að nafn­virði á næstu þremur árum, eða út árið 2017. Þetta kemur fram í Þjóð­ar­hag, riti hag­fræði­deild­ar­innar. Hag­fræði­deildin spáir því hækk­unin í ár verði 8,5 pró­sent miðað við stöð­una í byrjun árs­ins. Á næsta ári er því spáð að verðið hækki um 9,5 pró­sent, um 6,5 pró­sent árið 2016 og 6,2 pró­sent árið 2017. Yfir næstu þrjú árin nemur hækk­unin 24 pró­sentum.

Samkvæmt þess­ari spá mun íbúð sem í dag er metin á 30 millj­ónir, vera metin á 37,2 millj­ónir í lok árs 2017. Að teknu til­liti til verð­lags­þró­unar, sam­kvæmt spánni, verður raun­verðs­hækk­unin um 13 pró­sent. Þá er því spáð að leigu­verði muni einnig hækka sam­hliða hækk­unin fast­eigna­verðs­ins.

Í rit­inu kemur fram að tölur Seðla­banka Íslands sýni að fyrstu kaup á fast­eigna­mark­aði séu erf­iður hjalli fyrir marga, en innan við 20 pró­sent af heild­ar­veltu er vegna fyrstu kaupa, sem er minna en í venju­legu árferði. Þá segir einnig að í fram­tíð­inni geti þessi staða þyngst enn frekar þar sem hröð hækkun fast­eigna­verðs muni gera fólki sem er að kaupa í fyrsta sinn, erfitt um að vik að safna upp í inn­borgun vegna lána­skil­yrða bank­anna. Hámarks­lán vegna fyrstu kaupa eru 85 pró­sent af kaup­verði hjá Lands­bank­anum, 90 pró­sent hjá Íslands­banka (aðeins um minnstu eign­irnar, ann­ars 80 pró­sent), 80 pró­sent hjá Arion banka og 80 pró­sent hjá Íbúða­lána­sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár