Stuðningur við ríkisstjórnina eykst

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina eykst á milli skoð­ana­kann­anna hjá MMR, og mælist nú 36,4 pró­sent miðað við 33 pró­sent í síð­ustu könnun, sem lauk 4. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Þetta kemur fram í frétt á heima­síðu MMR. Í lok októ­ber mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks 34,3 pró­sent. Spurt var: „Styður þú rík­is­stjórn­ina?“ Svar­mögu­leikar voru „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara.“ Samtals tóku 84,2 pró­sent aðspurðra afstöðu til spurn­ing­ar­innar.

Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 21. til 25. nóv­em­ber og var heild­ar­fjöldi svar­enda 1042 ein­stak­lingar, átján ára og eldri.

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins eykst á milli kann­anna og mælist nú 25,4 pró­sent borið saman við 23,6 pró­sent í síð­ustu könnun, sem lauk 4. nóv­em­ber. Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar eykst lít­il­lega á sama tíma, mælist nú 16,5 pró­sent, miðað við 16,1 pró­sent í síð­ustu könnun. Fylgi Bjartrar fram­tíðar minnkar hins vegar tölu­vert á milli kann­anna, mælist nú 15,5 pró­sent, sam­an­borið við 18,6 pró­sent í fyrri könnun. Þá tapar Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fylgi, og mælist nú með 11,8 pró­sent, en flokk­ur­inn mæld­ist með 12,3 pró­senta fylgi í síð­ustu könnun MMR. Vinstri græn mæl­ast nú með 11,2 pró­senta fylgi, miðað við 10,7 pró­sent í fyrri könnun, og fylgi Pírata mælist nú 10,6 pró­sent, miðað við 11,3 pró­sent í síð­ustu könnun. Fylgi ann­arra flokka mæld­ist undir tveimur pró­sentum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár