Pæling dagsins: Eðlilegar áhyggjur af eingáttastefnunni

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Tíu hags­muna­sam­tök á lands­byggð­inni, frá Vest­fjörðum til Aust­fjarða, sendu frá sér til­kynn­ingu um dag­inn þar sem athygli var vakin á mik­il­vægi þess að efla alþjóða­flug­sam­göngur á lands­byggð­inni. Hið ágæta orð, ein­gátta­stefna, er það sem nær utan um þá stefnu sem nú er, sem er að mestu fólgin í því að byggja upp allt alþjóða­flug á Ísland frá flug­vell­inum í Keflavík. Bréf­rit­ara, sem er hlýtt til lands­byggð­ar­innar, finnst þetta áhuga­verðar hug­myndir hjá sam­tök­unum. Sér­stak­lega þegar kemur að því að efla og styrkja milli­landa­flug frá Akureyri og Egils­stöðum. En hvað er til bragðs að taka? Einn mögu­leik­inn væri að auka sjálfs­stjórn yfir flug­völl­unum í heima­hér­aði. Afla jafn­vel fjár sér­stak­lega fyrir þessa flug­velli, mark­aðs­setja þessa lend­ing­ar­staði fyrir erlenda ferða­menn sjálf­stætt og auka þannig mögu­leik­ana, undir stjórn fólks í heima­hér­aði. Allt kostar þetta pen­inga, mikla pen­inga. En það þarf að hugsa fram í tím­ann þegar að þessu kemur. Ein­gátta­stefnan er fljót að kom­ast að enda­stöð, og verða til tak­mörk­unar fyrir ferða­þjón­ust­una þegar fram í sækir, ef aukn­ingin í ferða­þjón­ustu verður áfram­hald­andi. Vonandi tekst að koma þessu máli í góðan umræðu­far­veg...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár