Íslenskur fimm barna faðir berst við útbreiðslu ebólu í Vestur-Afríku

Íslend­ing­ur­inn Gísli Rafn Ólafsson er nú staddur í Ghana þar sem hann tekur virkan þátt í bar­átt­unni gegn útbreiðslu ebólu-veirunnar í Vestur-Afríku. Gísli Rafn, sem er fimm barna faðir, hélt utan á vegum Nethope, sem eru þrettán ára gömul regn­hlíf­ar­sam­tök 42 stærstu hjálp­ar­sam­taka í heimi. Þetta er önnur ferð Gísla Rafns til Vestur-Afríku vegna ebólu-far­ald­urs­ins, en hann var meðal ann­ars stjórn­andi íslensku alþjóða­björg­un­ar­sveit­ar­innar sem fór til Haítí árið 2010 eftir stóran jarð­skjálfta þar í landi.

Gísli Rafn var björg­un­ar­sveit­ar­maður í rúm tutt­ugu ár, en síð­ast­lið­inn fjögur ár hefur hann starfað hjá Nethope, sem yfir­maður neyð­ar­mála hjá sam­tök­unum. Starf hans felst í sam­hæf­ingu á öllu er við­kemur fjar­skiptum og upp­lýs­inga­tækni, þegar áföll dynja á hvar sem er í heim­inum.

Á að koma á fjarskiptum á svæðum þar sem ebóla geysar


Verkefni Gísla verður að koma á fjar­skiptum á dreifð­ari svæðum í Síera Leóne, Líberíu og Gíneu, sem eru löndin sem hvað harð­ast hafa orðið úti vegna ebólu-veirunnar. „Okkar hlut­verk verður að koma á teng­ingum við inter­netið í þessum dreifð­ari sveitum og bæjum, þar sem ebólan geysar hvað mest,“ segir Gísli Rafn í sam­tali við Kjarnann. „Í dag er mjög tak­markað upp­lýs­inga­flæði frá þessum stöðum, þannig að það er mjög erfitt fyrir þá sem eru að skipu­leggja við­bragðs­á­ætl­anir að vita hvar þeir eigi að setja mestan þung­ann hverju sinni. Það frétt­ist oft ekki fyrr en dögum eða jafn­vel vikum síðar þegar ebólan blossar aftur upp á ein­hverjum stað, því það eru svo léleg fjar­skipti á þessum svæðum.“

[quote font="0" align="right"]„Ég veit hverjar hætt­urnar eru, og nota þar af leið­andi allar mögu­legar aðferðir til að forð­ast smit. Maður er ekki mikið að heilsa fólki og notar mikið hand­spritt og svo fram­vegis.“[/quote]

Nethope hyggst koma upp hátt í tvö hund­ruð gervi­hnatta­mót­tök­urum, sem sam­tökin hafa fengið að gjöf meðal ann­ars frá Facebook og auð­kýf­ingnum Paul Allen, sem er annar stofn­andi Microsoft. Gísli Rafn vinnur nú að und­ir­bún­ingi verk­efn­is­ins í Ghana þar sem Sam­ein­uðu þjóð­irnar sam­hæfa allar sínar aðgerðir, en hann stefnir á að fara á hættu­svæðin í næstu viku til að kanna aðstæður. Hann mun snúa aftur til Íslands um miðjan des­em­ber, en í byrjun jan­úar er ráð­gert að Gísli Rafn haldi aftur til Afríku, og tveir til þrír Íslend­ingar með honum sem sinna munu ákveðnum hlutum verk­efn­is­ins.

[caption id="attachment_12943" align="aligncenter" width="720"] Gísli Rafn Ólafsson í Haítí.[/caption]

Lét íslensk heilbrigðisyfirvöld vita af ferðinni


Áður en að Gísli Rafn hélt utan, hafði hann sam­band við íslensk heil­brigð­is­yf­ir­völd, lét vita af ferð sinni og leit­aði upp­lýs­inga um við­bragðs­á­ætl­anir. Hann segir sömu við­bragðs­reglur í gildi hér á landi eins og ann­ars staðar í heim­inum. „Ef þú ert ekki heil­brigð­is­starfs­maður, heldur hefur verið að aðstoða við aðra hluti en að sinna veikum, þá máttu koma heim strax en átt að fylgj­ast með lík­ams­hit­anum tvisvar á dag í þrjár vikur. Ef ein­hver hiti kemur upp á maður að hafa strax sam­band og láta vita að maður hafi verið á svæð­inu. Ebólan smit­ast nefni­lega ekki fyrr en hit­inn kemur, og það er góð leið til að átta sig á því hvenær maður er mögu­lega orð­inn smit­andi og hvenær maður er byrj­aður að veikj­ast sjálfur. Þannig að á þessum 21 degi, reynir maður að vera aðeins minna að umgang­ast aðra, alla­vega fólk sem er kannski við­kvæmt fyrir öðrum sjúk­dómum. En almennt séð er maður ekki settur í sótt­kví eða neitt slíkt.“

 

Fer að öllu með gát


Gísli Rafn er óhræddur við að smit­ast af ebólu-veirunni, hann fari að öllu með gát. „Ég veit hverjar hætt­urnar eru, og nota þar af leið­andi allar mögu­legar aðferðir til að forð­ast smit. Maður er ekki mikið að heilsa fólki og notar mikið hand­spritt og svo fram­vegis. Það er í raun þannig með ebóluna að smit­leið­irnar eru mjög svip­aðar og varð­andi HIV-veiruna, það er að segja að þú þarft að fá lík­ams­vessa til að sam­ein­ast til að smit­ast, þannig að það er mjög þekkt hvernig maður á að passa sig. Það eru helst heil­brigð­is­starfs­menn, serm eru að hjúkra og hjálpa þeim beint sem eru smit­aðir, sem eru í meiri hættu en við.“

[quote font="0" align="right"]„Ég byrj­aði í björg­un­ar­sveit fyrir rúmum 20 árum síðan, og það er í raun­inni sami drif­kraftur sem er í gangi hjá mér í dag og var þá, að vilja hjálpa þeim sem eru í neyð.“[/quote]

Að sögn Gísla Rafns, munu mark­mið alþjóða hjálp­ar­samta að hefta útbreiðslu ebólu-veirunnar fyrir 1. des­em­ber ekki nást. Sýkingar hafi verið að aukast og þá sér­stak­lega í Síera Leóne. „En alþjóða­sam­fé­lagið er loks­ins búið að taka almenni­lega við sér, en það tók langan tíma, því það er næstum komið ár síðan fyrsta til­fellið kom upp í Gíneu. Í raun­inni fór lítið að ger­ast fyrr en í sept­em­ber á þessu ári, en menn eru að von­ast til þess að hinn aukni þungi muni hafa áhrif og gera það að verkum að menn nái tökum á þessu. En sjúk­dóm­ur­inn er orð­inn ansi útbreiddur á mörgum dreifð­ari svæðum Síera Leóne og Líberíu, sem gerir mönnum erfitt um vik að ná utan um þetta.“

Viljinn til að hjálpa alltaf jafn sterkur


Gísli Rafn segir sama vilj­ann drífa sig áfram í dag, og þegar hann byrj­aði í björg­un­ar­sveit­ar­starf­inu á Íslandi. „Ég byrj­aði í björg­un­ar­sveit fyrir rúmum 20 árum síðan, og það er í raun­inni sami drif­kraftur sem er í gangi hjá mér í dag og var þá, að vilja hjálpa þeim sem eru í neyð. Það er nátt­úru­lega mjög sér­stakt við ebóluna, að það er í gangi ákveðin hræðsla við hana sem er kannski meiri en við margt annað, en sann­leik­ur­inn er sá að hætt­urnar eru kannski alveg jafn miklar og þegar maður fer inn á jarð­skjálfta­svæði eða eitt­hvað slíkt. Fjöl­skyldan mín er orðin ansi vön því að ég hoppi upp í næstu vél og fari þangað sem neyð er mikil. Um leið og það kom upp að ég væri að fara hingað, sagði konan við mig að það væri í fín­asta lagi, því hún vissi að ég myndi passa mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár