Færri feður fara í fæðingarorlof nú en fyrir hrun

Hlutfall feðra sem tekur fæð­ing­ar­or­lof hefur farið lækk­andi frá hruni og nú stefnir í að hlut­fall feðra sem tóku fæð­ing­ar­or­lof árið 2013, verði með því lægsta í yfir ára­tug. Frétta­blaðið greinir frá mál­inu á for­síðu blaðs­ins í dag.

Níu af hverjum tíu feðrum tóku fæð­ing­ar­or­lof árið 2009, en á síð­asta ári lítur út fyrir að hlut­fallið hafi lækkað um þrettán pró­sent og verði um 77 pró­sent. Í frétt Frétta­blaðs­ins er haft eftir Eygló Harð­ar­dóttur vel­ferð­ar­ráð­herra að ástand á vinnu­mark­aði gæti skýrt þró­un­ina, tekju­lágir feður séu hrædd­ari um störfin sín. Þá sé mik­il­vægt að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins séu með í ráðum hvað þetta varði.

Kristín Ást­geirs­dóttir jafn­rétt­is­stýra segir að glögg­lega hafi mátt sjá breyt­ingar á fæð­ing­ar­or­lofi karla á síð­ustu árum, í sam­tali við Frétta­blaðið. Þróunin sé afleið­ing efna­hags­hruns­ins sem Ísland gekk í gegnum. Hún telur eðli­legt að staldra við og íhuga hvað sé hægt að gera til að hækka hlut­fall karla sem taki fæð­ing­ar­or­lof, og vill sjá grein­ingu á því hvers konar feður taka ekki fæð­ing­ar­or­lof. Hún hefur áhyggjur af því að sá ávinn­ingur sem náð­ist með fæð­ing­ar­or­lof­inu sé að ein­hverju leyti að ganga til baka.

Vel­ferð­ar­ráð­herra segir málið alvar­legt og vill fá breiða sátt um að bæta úr stöð­unni. „Fæðingum hefur fækkað og lægra hlut­fall feðra tekur fæð­ing­ar­or­lof. Ég hef sett á fót starfs­hóp um fram­tíð­ar­skipan fæð­ing­ar­or­lofs. Ég tel mik­il­vægt að bæta stöð­una. Fæð­ing­ar­or­lof á Íslandi er styttra en á hinum Norð­ur­lönd­unum. Það sem skiptir máli er að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins komi að borð­inu og þetta verði hluti af samn­inga­við­ræðum við nýja kjara­samn­inga eftir ára­mót,“ er haft eftir Eygló Harð­ar­dóttur í Frétta­blað­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár