FME og SÍ að teikna upp sviðsmyndir vegna álits EFTA

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) og Seðla­banki Íslands (SÍ) vinna nú að nýrri sviðs­mynd­ar­grein­ingu vegna álits EFTA-dóm­stóls­ins frá því í gær, þar sem hann komst að því að ekki sé heim­ilt að miða við 0 pró­sent verð­bólgu við útreikn­ing á heild­ar­lán­töku­kostn­aði ef verð­bólgan er hærri eða lægri en sú tala. Dóm­stóll­inn var beð­inn um að gefa ráð­gef­andi álit í máli Sævars Jóns Gunn­ars­sonar gegn Lands­bank­anum, sem höfðað var vegna verð­tryggðs neyt­enda­láns sem Sævar tók haustið 2008.

Í nið­ur­stöð­unni segir skýr­lega að það sé lands­dóm­stóls að meta hvaða áhrif það hafi að gefa rangar upp­ýs­ingar um heild­ar­lán­töku­kostnað og hvaða úrræðum sé hægt að beita til að bæta fyrir þær upp­lýs­ingar. Bjarni Bene­dikts­son efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, sagði í sam­tali við Kjarnann í gær að það væri óheppi­legt að það væri óvissa uppi, en nú væri það dóm­stóla að eyða óvissu um málið.

Jón Þór Sturlu­son, aðstoð­ar­for­stjóri FME, sagði í sam­tali við Kjarnann að FME og Seðla­banki Íslands væru búin að vinna ítar­legar grein­ingar á sviðs­myndum sem gætu komið upp, þegar kemur að dóms­málum sem tengj­ast verð­trygg­ing­unni. Vinnu vegna þessa til­tekna álita­máls, sem varðar 0 pró­sent verð­bólgu­við­mið í samn­ingum, er ekki lokið ennþá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár