Hlustendur Útvarps Sögu vilja ekki að Tony Omos fái ríkisborgararétt

Afger­andi meiri­hluti hlust­enda Útvarps Sögu vill ekki að Tony Omos verði íslenskur rík­is­borg­ari. Þetta kemur fram í frétt á vef­síðu útvarps­stöðv­ar­innar sem birt­ist í dag.

Um er að ræða nið­ur­stöður óvís­inda­legrar skoð­ana­könn­unar, sem útvarps­stöðin efndi til á heima­síðu sinni síð­asta sól­ar­hring­inn, að því er fram kemur í áður­nefndri frétt á vef­síðu Útvarps Sögu.

Nið­ur­stöð­urnar eru afger­andi, eins og áður segir, en af þeim 836 sem tóku þátt í skoð­ana­könn­un­inni, svör­uðu 766 henni neit­andi eða 92 pró­sent, já sögðu 45 eða 4,5 pró­sent og 22 lýstu sig hlut­lausa, eða 2,6 pró­sent.

Í byrjun næsta mán­aðar verður kveð­inn upp dómur í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur um hvort Tony Omos fær hæli hér á landi. Hann dvelur nú á Ítalíu, en honum var vísað úr landi í lok síð­asta árs. Með úrskurði sínum vorið 2013 synj­aði Útlend­inga­stofnun Tony Omos um hæli á Íslandi. Sá úrskurður var kærður til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, sem svo stað­festi úrskurð­inn síð­asta haust. Nið­ur­staða inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins var kærð, og er nú beðið dóms í því máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár