Um 30 milljarðar í upplýsingatækniþjónustu hjá ríkinu frá 2007

Íslenska ríkið keypti upp­lýs­inga­tækni­þjón­ustu fyrir 30,4 millj­arða króna á árunum 2007 til 2013. Kaup á slíkri þjón­ustu hafa auk­ist ár frá ári og voru hæst í fyrra, þegar 4,9 millj­arðar króna fóru í slík kaup. Á síð­asta ári eyddi emb­ætti rík­is­skatt­stjóra hæstri fjár­hæð í aðkeypta þjón­ustu frá upp­lýs­inga­fyr­ir­tækjum, eða 377 millj­ónum króna. Þetta kemur fram í skrif­legu svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Píratans Helga Hrafns Gunn­ars­sonar sem lagt var fram á Alþingi í dag.

Umframgreiðslur liggja ekki fyrir


Helgi Hrafn spurði líka um hvaða til­teknu við­skipti við upp­lýs­inga­fyr­ir­tæki hafi ekki farið í gegnum útboðs­ferli á þessu tíma­bili, 2007-2013, en hafi nú þegar leitt til heild­ar­greiðslna sem nema meira en gild­andi við­mið­un­ar­fjár­hæðum þess tíma þegar hver samn­ingur var und­ir­rit­aður, og hver ástæða þess hafi verið að ekki var farið í útboð í þeim til­fellum.

Í svari ráð­herr­ans segir: „ Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur ekki tök á að greina út frá fyr­ir­liggj­andi fjár­hags­upp­lýs­ingum hvaða við­skipti við upp­lýs­inga­tækni­fyr­ir­tæki fóru í útboðs­ferli á árunum 2007–2013. Þá liggur ekki fyrir í hvaða við­skiptum heild­ar­greiðslur fóru umfram við­mið­un­ar­fjár­hæðir á hverjum tíma. Ástæða þess er að inn­kaup rík­is­ins sem byggð eru á útboðum eða ramma­samn­ingum eru ekki sér­merkt í fjár­hags­kerfi rík­is­ins. Hins vegar fara fram útboð á sviði upp­lýs­inga­tækni­mála reglu­lega og samn­ingar sem gerðir eru á grund­velli þeirra geta náð yfir fjölda ára. Einnig eru í gildi ramma­samn­ingar á sviði upp­lýs­inga­tækni­mála og sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Rík­is­kaupum var velta þess­ara samn­inga á árinu 2013 um 1,6 millj­arðar kr.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár