Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Eindhoven

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Við tókum auð­vitað bara svoldið dug­lega á því í gær. Ég man ekki nákvæm­lega hver koju­röðin var en við Böbbi gerðum þetta best og fórum í kodd­ann um hálf7. Þá vorum við búnir að hluta á alls­konar tón­list og almennt leysa lífs­gát­urnar allar. Við vorum ekki á bíl, svo mikið er víst. Við vorum vissu­lega í bíl en alls ekki við stýrið. Þetta var gott kvöld.

Og svo vakn­aði ég bara hérna í Eind­hoven seinni­part­inn í dag. Eins og venju­lega dratt­að­ist ég bara út á plan og tók miðið á eitt­hvað sem gæti verið tón­leika­stað­ur­inn. Sem það reyndar var. En hví­líkur tón­leika­staður. Hús á 6 hæðum og alls­konar alls­konar um allt. Ég reyndar fann Böbba strax í andyr­inu þar sem hann var sam­visku­sam­lega í við­tali. Ég fékk vit­an­lega smá móral, búinn að sofa allt af mér meðan æsku­vinur minn og drykkju­fé­lagi sinnti skyld­unum. En svo voru bara fleiri við­töl, við Böbbi tókum tvö til við­bótar og Jón og Baldur alla­vega eitt. Skemmti­legt fólk Hol­lend­ing­arnir. Það er eitt­hvað við þá sem maður tengir við.

[caption id="attachment_12873" align="alignnone" width="2176"] Halló! Við sjáum þig![/caption]

Ég held að hel­vítið hann Þrási hafi farið út að hlaupa í dag. Það lætur okkur hina líta verr út. Baldur vill reyndar meina að hlaupa­dótið hans skili sér til hans í Köln. Það verður gaman að sjá hvort þeir halda eitt­hvað í við ofur­mennið Robert. Og Halli, hann er strax búinn að lýsa því yfir að hann muni hlaupa líka. Gott að menn eru brattir svona í upp­hafi. Sjáum til.

Við fengum fréttir frá Belganum sem hvarf. Eftir giggið í Bochum var hann á bak og burt og bíll­inn hans líka. Sá hafði sam­band við Baldur í gær eða dag og gekkst við því að hafa keyrt af stað heim. En svo varð hann bens­ín­lít­ill og keyrði, ofurölvi, inn á bens­ín­stöð. Og þar tók löggan hann. Það var nú gott. Og auð­vitað pínu fyndið. En samt meira gott. Maður á ekki að keyra fullur.

Eftir við­tölin hófst leitin mikla. Þetta er glæsi­legt tón­leika­hús en það var ekki við­lit að vita hvar maður átti að fara til að kom­ast þangað sem maður vildi. Matsalur á fjórðu hæð, bún­ings­her­bergi á fimmtu og tón­leika­sal­ur­inn að ég held á þriðju. Allt saman alger­lega glæsi­legt og til fyr­ir­myndar vissu­lega en þetta var svo­lítið eins og að vera skil­inn einn eftir fjög­urra ára gam­all í Borg­ar­kringl­unni. En já, hér var allt gott. Salurinn sá glæsi­leg­asti sem við höfum spilað í á túrnum, starfs­fólkið ekki bara starfi sínu vaxið heldur líka jákvætt og dríf­andi, mat­ur­inn góður og bún­ings­her­bergið okkar alveg frá­bært. Ég drakk, not­aði inter­net, kúkaði og fór í sturtu, allt í þessu sama her­bergi. Og allt ofan­greint gekk sér­lega vel.

Þetta var fyrsti dag­ur­inn hans Halla. Hann vakn­aði merki­lega hress eftir Rússa-útreið­ina og bar sig frekar vel í dag. Sánd­tékkið var ótrú­lega tíð­inda­laust, sér­stak­lega miðað við að vera með nýjan með­lim inn­an­borðs, og allir gengu til sinna verka. Og svo þetta venju­lega við, í grút­skítugan gigggall­ann, setja í sig tvo­þrjá bjóra og koma sér í gír­inn. Ég veit ekki fyrir hversu marga við spil­uðum en ég ætla að giska á þús­und manns. Þetta var rooosalegt gigg. Strax frá fyrsta lagi negldum við hvert ein­asta manns­barn í salnum og slepptum þeim ekki lausum fyrr en eftir þrjú korter. Heddbang, sam­söngur, hnefa­barn­ingur og grjót­harður pyttur. Svona á þetta að vera.

Við vorum með nýjan mann á svið­inu. Ég var mest hissa á hversu litlu það mun­aði en það segir vænt­an­lega meira um Halla en okkur hina. Þetta heitir pró­fes­sjóna­l­ismi. Og þetta eru stórir skór að fylla. Magnað að gera leyst hlut­ina svona og þurfa ekki að leita lengra frá sér.

Og þannig var það. Giggið frá­bært og allt saman til fyr­ir­myndar. Við þrifum okkur og gerðum það sem maður gerir eftir gigg, hlóðum draslinu í kerruna með dyggri hjálp frá frá­bæru fólki á venjúinu. Klukkan er 22.32 og við sitjum allir á rútu á leið til Köln. Þangað er ekki langur akstur, kannski tveir tímar á að giska, og það gleður mig meira en venju­lega. Þar bíða okkar konur. Ekki bara hvað konur sem er, og reyndar bíða þær meira eftir sumum en hinum. Vera hans Baldurs og Agnes mín flugu út í morgun til að heim­sækja okkur. Við eigum frí­dag á morgun og ég sé fram á tvær nætur á hót­el­her­bergi. Það ætla ég að sinna hlutum. Alls­konar hlutum.

Og núna sitjum við bara allir hér frammi í rút­unni, pass­lega góð­glaðir og allir bros­andi. Þetta heldur bara áfram og við förum fram úr okkar eigin vonum á hverjum degi. Sölu­varn­ing­ur­inn sem við tókum með okkur er allur búinn og túr­inn rétt rúm­lega hálfn­aður. Við erum þó með bak­plön í þeim efnum og fáum meira strax á þriðju­dag­inn. Mót­tök­urnar eru frá­bærar, mórall­inn enn betri og allt sér­lega gott.

Ég get líka lekið fréttum fyrst ég er byrj­aður á þessu. Elu­veitie halda á Suður-Evr­óputúr núna í febr­úar sem mun taka tvær vikur. Og þar verður Skálmöld líka. Við fengum fyr­ir­spurn um þetta tæpum tveimur vikum eftir að þessi túr hófst, að vera aðal­upp­hit­un­ar­bandið fyrir þau á þessum túr. Og við sögðum já. Auðvitað sögðum við já. Þetta er bæði upp­hefð og skref upp á við fyrir okkur. En ein­hverju verður að fórna og við finnum út úr því jafn­óðum. Fyrir mína parta er nokkuð ljóst að Agnes verður ekk­ert minna ólétt í febr­úar. Þetta verður ekki mjög löng með­ganga hjá mér. Á hverjum degi þakka ég fyrir að hafa náð að raða svona góðu fólki kringum mig í líf­inu.

Og nú bíðum við bara eftir að kom­ast til Kölnar. Ég er hreinn og strok­inn, tann­bur­staður með kókósol­í­una hans Jóns í skegg­inu. Þetta ilmar skemmti­lega. Ég er ekki viss um að ég verði til mik­illa verka þegar til Kölnar kemur en við því býst svo sem eng­inn af mér. Sofa kjurr, það verður sér­stakt.

Nú ætla ég að opna einn belgískan bjór enn og spjalla við sam­ferða­menn mína. Andinn er góður og veg­ur­inn breiður. Við hugsum hlý­lega heim til Gunna sem lenti í sínu rúmi í dag. Þetta breytir ýmsu en þó ekki nokkrum sköp­uðum hlut í stóra sam­heng­inu.

Meist­ara­legt dags­ins: Frábært venjú og gott gigg.

Sköll dags­ins: Flexi tók við Juventus í dag. Liðið er í henglum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár