Pæling dagsins: Ætli stjórnmálamenn muni ræða ábyrgð sína?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Móðir allra leið­rétt­inga verður að veru­leika ef lán­veit­endur þurfa að greiða lán­tak­endum mörg hund­ruð millj­arða, jafn­vel þús­und millj­arða, til baka vegna þess að ekki var heim­ild til þess að miða við 0 pró­sent verð­bólgu við útreikn­ing á heild­ar­lán­töku­kostn­aði verð­tryggðra lána, líkt og álit EFTA segir til um. Í versta falli getur íslenska ríkið farið á haus­inn. Hæsti­réttur á síð­asta orðið, og best að segja sem minnst á þessum tíma­punkti. Það er hins vegar umhugs­un­ar­efni, hvernig mál hafa þró­ast hér á landi á und­an­förnum árum og ára­tugum og hvaða sann­leika dóm­stólar hafa leitt í ljós með dómum sínum. Að mati bréf­rit­ara blasir við hversu mátt­laust og óvandað reglu­verkið hefur verið á íslenskum fjár­mála­mark­aði á löngu tíma­bili, frá því löngu fyrir hrunið. Dæmin blasa við. Geng­is­trygg­ingin var dæmd ólög­mæt, og fengu geng­is­tryggðar lán­veit­ingar í krónum að við­gang­ast árum saman án þess að nokkur lyfti litla fingri. Þær sköp­uðu stór­hættu fyrir þjóð­ar­bú­skap­inn. Það sama á nú við um útreikn­ing á heild­ar­lán­töku­kostn­aði þegar kemur að verð­tryggðum lánum. Árum, jafn­vel ára­tugum, saman hefur verk­lag sem ekki stenst lög, ef álit EFTA er haft til hlið­sjónar, fengið að við­gang­ast. Hvernig stendur á þessu? Stjórn­mála­menn bera á þessu mikla ábyrgð. Þeir búa til leik­regl­urnar, lögin í land­inu og eft­ir­lits­stofn­anir starfa í umboði þeirra. Ætli þeir muni ræða um ábyrgð sína á þess­ari stöðu? Það verður áhuga­vert að fylgj­ast með fram­hald­inu...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár