Tónlistarkennarar búnir að semja til skamms tíma

Tón­list­ar­kenn­arar og sveit­ar­fé­lög lands­ins skrif­uðu í nótt undir nýjan kjara­samn­ing. Verk­falli tón­list­ar­kenn­ara verður því hætt frá og með deg­inum í dag og tón­list­ar­skólar hefja sam­stundis störf. Verkfall tón­list­ar­kenn­ara hefur staðið yfir í fimm vikur.Frá þessu er greint á mbl.is.

Á vefnum er haft eftir Sigrúnu Grendal, for­manni Félags tón­list­ar­kenn­ara að „nú geta tón­list­ar­nem­endur farið að leita að hljóð­fær­unum og kennslu­bók­unum[...]Þetta var brött brekka og erf­iðir samn­ing­a“.

Skrifað var undir samn­ing­inn milli klukkan fimm og sex í morgun eftir fund­ar­höld sem staðið höfðu alla nótt­ina. Samn­ing­ur­inn verður bor­inn undir félags­menn og nið­ur­staða kosn­inga um hann verður kunn­gjörð 8. des­em­ber næst­kom­andi. Samn­ing­ur­inn er til skamms tíma.

Fyrsta verkfall tónlistarkennara frá 2001


[caption id="attachment_12776" align="align­right" width="150"] Einar Már Guð­munds­son rit­höf­undur.[/caption]

Tón­list­ar­kenn­arar beittu verk­falls­vopn­inu síð­ast árið 2001, en þá reikn­að­ist FT til að laun tón­list­ar­kenn­ara væru um 17 pró­sentum lægri en laun grunn­skóla­kenn­ara og 33 pró­sentum lægri en laun fram­halds­skóla­kenn­ara. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá KÍ munar nú allt að 37 pró­sentum á launum tón­list­ar­kenn­ara og grunn­skóla­kenn­ara, og laun fram­halds­skóla­kenn­ara eru allt að 39 pró­sentum hærri en laun tón­list­ar­kenn­ara eins og áður segir.

Einar Már Guð­munds­son rit­höf­undur skrif­aði harð­orðan pistil til stuðn­ings tón­list­ar­kenn­urum á Kjarnann í gær þar sem hann hvatti til þess að samið yrði við tón­list­ar­kenn­ara strax. Honum varð því að ósk sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár