Bjarni Ben: Óheppilegt að það sé óvissa uppi

„Það er óheppi­legt að það sé óvissa uppi, en það er íslenskra dóm­stóla að skera úr um þetta álita­efni. Fyrr en sú nið­ur­staða liggur fyrir er ekki hægt að segja til um hver áhrif verða á fjár­mála­mark­aði,“ segir Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um niðu­stöðu EFTA-dóm­stóls­ins frá því í morgun, en hann komst að því að ekki sé heim­ilt að miða við 0 pró­sent verð­bólgu við útreikn­ing á heild­ar­lán­töku­kostn­aði ef verð­bólgan er hærri eða lægri en sú tala. Dóm­stóll­inn var beð­inn um að gefa ráð­gef­andi álit í máli Sævars Jóns Gunn­ars­sonar gegn Lands­bank­anum, sem höfðað hafði verið vegna verð­tryggðs neyt­enda­láns sem Sævar tók haustið 2008.

Í nið­ur­stöð­unni segir skýr­lega að það sé lands­dóm­stóls að meta hvaða áhrif það hafi að gefa rangar upp­ýs­ingar um heild­ar­lán­töku­kostnað og hvaða úrræðum sé hægt að beita til að bæta fyrir þær upp­lýs­ingar.

Bjarni sagði í sam­tali við Kjarnann að Fjár­mála­eft­ir­litið væri búið að vinna ákveðna und­ir­bún­ings­vinnu, þar á meðal teikna upp sviðs­myndir út frá gefnum nið­ur­stöðum dóm­stóla um hver áhrifin gætu orðið á fjár­mála­mark­aði. Hann sagði ekki tíma­bært að tjá sig um þessar sviðs­myndir eða gera þær opin­berar á þessar stundu. „Dóm­stólar eiga síð­asta orðið um þetta álita­mál. Íslenska ríkið er ekki aðili í þessu máli, og því er það ekki þess að óska eftir flýti­með­ferð. Það er þá frekar Lands­bank­inn sem gæti gert það,“ sagði Bjarni.

Eins og fram kom í frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans í dag, þá gæti þessi nið­ur­staða haft víð­tæk áhrif á íslenskt sam­fé­lag. Hæsti­réttur Íslands hefur nú tvo val­kosti: annað hvort horfir hann til fyrstu máls­greinar 14. greinar gömlu lag­anna um neyt­enda­mál. Þá verða öll verð­tryggð neyt­enda­lán ólög­mæt og verð­bætur vegna þeirra þarf þá vænt­an­lega að end­ur­greiða. Það þýðir að lán­veit­endur þurfa að borga til baka allar verð­bætur vegna fast­eigna­lána, bíla­lána, yfir­drátta og ann­arra verð­tryggðra neyt­enda­lána sem tekin hafa verið frá því að til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins var inn­leidd. Hæsti­réttur getur líka horft til þriðju máls­greinar sömu laga og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að verð­tryggð lán séu ekki ólög­mæt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár