Ríkisendurskoðun gaf fjárlaganefnd rangar upplýsingar um RÚV

Rík­is­end­ur­skoðun tók nýverið saman minn­is­blað um fjár­hags­stöðu Rík­is­út­varps­ins (RÚV) að beiðni fjár­laga­nefndar Alþingis. Minn­is­blaðið var eitt þeirra gagna sem lá til grund­vallar umfjöll­unar fjár­laga­nefndar um mál­efni RÚV, en minn­is­blað­inu var lekið til Morg­un­blaðs­ins sem birti for­síðu­frétt sem byggð var á upp­lýs­ing­unum sem þar var að finna. Eftir að fréttin birt­ist, neydd­ist Rík­is­end­ur­skoðun til að senda frá sér til­kynn­ingu þar sem fram kemur að tölu­vert hafi verið um rang­færslur í minn­is­blað­inu.

Fjár­laga­nefnd Alþingis, sem ákvarðar fjár­fram­lög til stofn­anna rík­is­ins, hafði því fengið í hend­urnar mein­gallað minn­is­blað Rík­is­end­ur­skoð­unar um fjár­hags­stöðu RÚV. Alls óvíst er hvort upp hefði kom­ist um ágalla minn­is­blaðs­ins, hefði því ekki verið lekið til fjöl­miðla. Rík­is­end­ur­skoðun sendi fjár­laga­nefnd Alþingis umrætt minn­is­blað þann 13. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Minnisblaðið fullt af rangfærslum


Í minn­is­blað­inu sem Rík­is­end­ur­skoðun sendi fjár­laga­nefnd var rang­hermt að upp­gjör RÚV fyrir tvö síð­ustu alm­an­aksár hefðu ekki verið árituð af stjórn­endum og end­ur­skoð­endum félags­ins, eins og lög mæla fyrir um. Svo virð­ist sem að Rík­is­end­ur­skoðun hafi látið undir höfuð leggj­ast að leita skýr­inga hjá Fjár­sýslu rík­is­ins, sem tekur við árs­reikn­ingum RÚV, en rang­færslu Rík­is­end­ur­skoð­unar má rekja til mis­skiln­ings stofn­un­ar­innar á upp­gjörs­málum félags­ins.

Þá er dregin sú ályktun í minn­is­blað­inu að sam­dráttur í starfs­manna­haldi hafi ekki enn skilað sér í lægri launa­kostn­aði hjá RÚV, en félagið greip til veru­legra sparn­að­ar­að­gerða með upp­sögnum starfs­fólks í lok síð­asta árs. Í minn­is­blað­inu er fjallað um launa­kostnað RÚV fyrir tíma­bilið 1. sept­em­ber 2013 til 28. febr­úar síð­ast­lið­ins og hann bor­inn saman við sama tíma­bil árið á undan. Sam­an­burð­ur­inn leiddi í ljós að launa­gjöld hækk­uðu um 5,9 pró­sent og stöðu­gildum fækk­aði úr 296 í 273. Í til­kynn­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar, þar sem rang­færslur áður­nefnds minn­is­blaðs eru leið­réttar, segir að ekki sé að vænta sjá­an­legs sparn­aðar vegna sam­drátt­ar­að­gerða RÚV í lok árs 2013, fyrr en síðar og því gefi staðan í lok febr­úar ekki rétta mynd af núver­andi stöðu.

Eins og fram hefur komið hefur stjórn RÚV ákveðið að aug­lýsa skrif­stofu­hús­næði í Útvarps­hús­inu við Efsta­leiti til leigu. Í minn­is­blaði Rík­is­end­ur­skoð­unar er full­yrt að ásókn í hús­næðið sé ekki mikil. Hið rétta er að stjórn­endur RÚV hafa fundið fyrir miklum áhuga á hús­næð­inu, og telja góðar líkur á að innan skamms verði unnt að ganga frá leigu­samn­ingum.

Fullyrðingar sem ekki standast skoðun


Rík­is­end­ur­skoðun telur ekk­ert benda til ann­ars er að stjórn RÚV hafi ávallt verið upp­lýst um afkomu, stöðu og horfur í rekstri félags­ins ásamt til­lögum til aðgerða, að því er fram kemur í títt­nefndu minn­is­blaði. Í til­kynn­ingu Rík­is­end­ur­skoð­unar er áréttað að stofn­un­inni sé ekki kunn­ugt um að upp­lýs­ingum um rekst­ur­inn hafi verið leynt fyrir stjórn eða þær settar fram með mis­vísandi hætti. Hins vegar megi geta þess að stjórn­ar­menn í fyrri stjórn RÚV hafi gert athuga­semdir við það að sem þeir töldu ófull­nægj­andi upp­lýs­inga­gjöf um mál­efni félags­ins, og það komi fram í fund­ar­gerðum þess. Þá hafi sömu­leiðis komið fram að stjórn­endur félags­ins hafi unnið með stjórn þess að því að bæta upp­lýs­inga­gjöf til stjórnar, til að gera hana mark­viss­ari en áður.

Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri kaus að tjá sig ekki um málið, þegar Kjarninn leit­aði við­bragða hans við vinnu­brögðum Rík­is­end­ur­skoð­unar. Hann stað­festi hins vegar að for­svars­menn Rík­is­út­varps­ins hefðu fyrst haft spurnir af minn­is­blaði Rík­is­end­ur­skoð­unar þegar þeir lásu frétt um það á for­síðu Morg­un­blaðs­ins á föstu­dag. Þá stað­festi hann einnig að ekki hefði verið leitað upp­lýs­inga hjá starfs­mönnum félags­ins og að í minn­is­blað­inu hefðu verið villur. Hann bætti við að það hefði þó verið bót í máli þegar Rík­is­end­ur­skoðun hefði sent frá sér leið­rétt­ingu seinna um dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár