Þrefalt fleiri stjórnendur bjartsýnir á vöxt nú en í aprílmánuði 2011

Tæplega þrír af hverjum fjórum stjórn­endum í íslensku atvinnu­lífi, eða 73,3 pró­sent þeirra, eru bjart­sýnir á að hag­kerfið muni vaxa næsta árið. Þeim stjórn­endum sem bera þá bjart­sýni í brjósti hefur þó fækkað síðan í sumar, þegar 81,1 pró­sent slíkra sagð­ist vera bjart­sýnn á aukin vöxt. Bjart­sýnin hefur hins vegar auk­ist mikið frá því í des­em­ber í fyrra þegar 58,9 pró­sent stjórn­enda var bjart­sýnn á að hag­kerfið myndi vaxa næsta árið. Og þegar horft er enn lengur aftur í tím­ann, nánar til­tekið til apr­íl­mán­aðar 2011, hefur fjöldi þeirra sem er bjart­sýnn nán­ast þre­fald­ast. Þá töldu ein­ungis 27 pró­sent stjórn­enda að bjart væri framundan í íslenska hag­kerf­inu næsta árið.

Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR á við­horfi stjórn­enda íslenskra fyr­ir­tækja til horfa í íslensku hag­kerfi sem og mik­il­vægra þátta í rekstr­ar­um­hverfi þeirra eigin fyr­ir­tækja til næstu tólf mán­aða. Könnunin fór fram á a tíma­bil­inu 9. til 14. októ­ber 2014. Til stjórn­enda telj­ast for­stjórar, fram­kvæmda-, fjár­mála- og mark­aðs­stjórar. Könnunin var net­könnun og 602 ein­stak­lingar svör­uðu henni.

Fáir búast við að starfsfólki muni fjölga


Í nið­ur­stöðum MMR kemur einnig fram að tæp­lega sjö af hverjum tíu stjórn­endum telji að launa­kostn­aður fyr­ir­tækja þeirra muni aukast, að eft­ir­spurn eftir þeirri vöru og þjón­ustu sem fyr­ir­tækin bjóða upp á muni aukast og að velta fyr­ir­tækja þeirra muni aukast á næstu tólf mán­uðum.

Rúmlega helm­ingur þeirra telur að arð­semi og sam­keppn­is­hæfni fyr­ir­tækj­anna muni aukast og um 45 pró­sent að mark­aðs­starf verði aukið næsta árið en ein­ungis rétt tæpur þriðj­ungur telur að starfs­fólki muni fjölga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár