Allt sem þig hefur alltaf langað að vita um alls konar - og bjór

Þorgeir Tryggva­son, Toggi, mun sinna bókaum­fjöllun fyrir Kjarnann fram að jólum en margar bækur eru að koma út þessa dag­ana. Jóla­bóka­flóðið nær svo hámarki í des­em­ber.

Höfundar: Hösk­uldur Sæmunds­son, Stefán Pálsson og Rán Flygenring

Bjór

Útgef­andi: Crymogea

Ef við myndum ákveða á morgun að hætta með krón­una og taka upp Trivia - fánýtan fróð­leik - sem gjald­miðil yrði Stefán Pálsson rík­asti maður lands­ins. Eða eins og hann myndi vafa­laust orða það, Bill Gates sinnar kyn­slóðar.

Góðu heilli er það trívíunör­dinn en ekki bjór­gorm­ur­inn sem skrifar þessa fal­legu og massívu bók í félagi við félaga sinn úr Bjór­skól­anum, Höskuld Sæmund­son. Lykt- og bragð­kjaftæði er afgreitt í einni línu yfir­leitt, af þeirri opnu sem helguð er hverri þeirra 120 bjór­teg­unda sem fjallað er um. Stundum er mælt með föstu fæði sem passar við við­kom­andi teg­und. Annars er bara stuð í stað­reynda­landi með bjór sem miðju en ekki alfa og ómega.

Þannig fræð­ist maður um The Greatful Dead (bls.45), blóð­berg (bls. 57), hina sígildu bíó­mynd Cool Runnings og tengsl hennar við ein­kenn­is­bjór Jamaíku­manna (bls. 137), Mídas kon­ung (bls. 69) og hin illu áhrif flökku­sagna (bls. 205).

Skemmti­leg­astur þykir mér text­inn á bls. 213 þar sem fléttað er saman fróð­leik um lista­mann­inn Prince og bjór­inn frá České Budějovice á snilld­ar­legan hátt, og senni­lega er þetta líka skemmti­legt fyrir það skrítna fólk sem ekki þekkir góða dát­ann Svejk.

Sú hrein­rækt­aða „bjór­stað­reynd“ sem situr fast­ast í mér er svo tví­mæla­laust sú að 40% af Guinness-neyslu heims­ins fari fram í Afríku.

Á móti text­unum er stillt upp myndum Ránar Flygenring. Hún hefur skemmti­legan teiknistíl en því miður er þetta of sjaldan snjallt. Myndinar gera lítið annað en að „illústrera“ text­ann, oft með hjálp frá útskýr­inga­textum sem virkar alltaf eins og hálf­gerð þrauta­lend­ing.

Bókinni er mjög skemmti­lega kafla­skipt, og bjór­teg­und­irnar flokk­aðar eftir heima­til­búnu þema­kerfi, stundum út frá nöfnum, stundum út frá lit, stundum vel­gengni. Það hefði samt ekki verið úr vegi að splæsa í ein­hvers­konar milli­síður til að greina kafl­ana að, í stað þess að fela kafla­heitin með smáu letri á mynda­síð­unum. Eitthvað er óhjá­kvæmi­lega um end­ur­tekn­ingar, sem og að sami hlut­ur­inn er útskýrður oft. Verra að það er stundum ítar­leg­ast þegar hann kemur síð­ast við sögu. Þannig er oft minnst á Trappista-munka­regl­una en upp­runi hennar loks­ins tíund­aður á blað­síðu 253.

Að vanda er hönnun og frá­gangur til sóma hjá Crymogeu. Því meira stinga í augun prent­villur sem leyn­ast þarna nokkrar. Já og svo er alveg bannað að fara rangt með til­vitn­anir í sjón­varps­þætt­ina Fame!

Heilt yfir er þetta samt fal­leg og eigu­leg bók, fjör­lega skrifuð og stút­full af nær­ing­ar­ríku stað­reyndasmælki um allt milli him­ins og jarðar. Og bjór. Örugg­lega samt betri til að dreypa á í hófi en að svolgra í sig í heilu lagi eins og óhjá­kvæmi­lega er hlut­skipti rýnis. Þannig neytt trúi ég að hún gleðji manns­ins hjarta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár