Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Hamborg

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Gunni er far­inn. Klukkan er 2.09 og við vorum að kveðja hann rétt í þessu. Svo er nú það að sjö vikna túrar í útlöndum eru ýmsu háðir og að ýmsu er að hyggja. Þegar við ákváðum að taka þennan túr var útséð með að Gunni gæti verið með okkur allan tím­ann. Hann þarf að sinna hámenn­ing­unni heima við, sem og alls­konar öðru skemmti­legu, og þannig var dag­ur­inn í dag var hans síð­asti dagur. Áður en við héldum af stað höfðum við sam­band við mann sem skyldi leysa Gunna af, þjálf­uðum hann upp og gerðum það sem þurfti að gera. Ákvörðun sem þessi er ekki tekin af léttum hug. Skálmöld telur sex með­limi sem lifa og hrær­ast í því sem bandið gerir. En stundum stand­ast hlutir á og þá hluti þarf að leysa.

[caption id="attachment_12751" align="alignnone" width="4425"] Hvað gerðir þú við pen­ing­ana sem frúin í Hamborg gaf þér? Svaraðu mér![/caption]

Þetta er aðeins í annað skipti sem við höfum þurft afleys­inga­mann á ferli bands­ins. Hið fyrra var fyrir mjög skömmu síðan þegar Jón Geir þurfti í axl­ar­að­gerð. Þá fengum við meist­ara­snill­ing­inn Kristján B. Heið­ars­son til að hlaupa í skarðið sem auð­vitað leysti sitt með ágætum, og raunar gott meira en það. Þegar upp kom að leysa þyrfti org­el­leik­ara vorn af hólmi kom eig­in­lega ekki nema einn maður til greina. Sá heitir Haraldur V. Svein­björns­son og er núna áfeng­is­dauður inni í koju.

Jæja, ok. Hann hóf ferða­lagið að heiman klukkan fimm í morgun og senni­lega hefur hann verið syfj­aður. En hann lenti í Rússunum sem vildu ekk­ert frekar en bjóða hann vel­kom­inn á túr­inn. Og þegar Rússar vilja fagna bjóða Rússar vodka. Og aum­ingja Halli fékk vodka. Allan vod­k­ann.

Halli er maður sem á sögu með Skálmöld. Hann er útlærður tón­list­ar­maður og hámenn­ing­ar­viti fyrir það fyrsta, en í mínum huga kannski fyrst og fremst maður sem var í Dead Sea Apple. Það er mjög töff. Hans nýj­ustu poppa­frek fara aðal­lega fram þegar hljóm­sveitin Buff stígur á stokk en þar spilar hann á bassa. Ég kynnt­ist honum reyndar fyrst á Hró­arskeldu­há­tíð­inni árið 2004 þegar við vorum báðir fal­legri og grennri. Og svo lágu okkur leiðir ekki almenni­lega aftur saman fyrr en í fyrra.

Halli er mað­ur­inn sem útsetti allt heila hel­vítis draslið fyrir tón­leika Skálmaldar með Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands. Þegar við vorum á túr fyrir rúmu ári síðan voru þeir Gunni í beinu sam­bandi til að láta hlut­ina ger­ast, Gunni var okkar tengiliður í verk­efn­inu en Halli var klár­lega mað­ur­inn sem lét hlut­ina ger­ast. Hver ein­asta rödd sin­fón­í­unnar sem og kór­arnir, þetta er allt saman hans. Sem og raunar mikið af okkar spila­mennsku því hann lét sig ekki muna um að ráð­ast inn á okkar yfir­ráða­svæði og skikk­aði okkur oft og tíðum til að spila hluti sem við vorum ekki vanir að spila. Og já, svo spilar hann auð­vitað líka á hljóm­borð.

Að skipta út túr­andi með­limi í Skálmöld er ekk­ert grín, og þetta er mikið til­finn­inga­mál. Ég ætla að geyma það fram á morgun að dæma hvað mér í raun og veru finnst. Auðvitað er ég him­in­lif­andi að við höfum ekki þurft að teygja okkur lengra en þetta til að finna full­kom­lega verðan afleys­inga­mann, en að sjá af Gunna upp í leigu­bíl hvar hann hélt heim á leið til Íslands var ekk­ert grín. Skálmöld er nefni­lega ekki bara hljóm­sveit. Skálmöld er gríð­ar­sterkur vina­hópur og heild sem slíkur. Í full­komnum heimi myndum við ekki þurfa að gera hlut­ina svona, en þegar allt hefur verið reiknað saman er þetta best. En já, þetta er und­ar­legt.

Annars var dag­ur­inn bara svona eins og dag­arnir eru almennt. Ég kláraði nótt­ina á að horfa á meira af Black Mirror og sofn­aði auð­vitað ekki fyrr en undir morgun. Og svo bara Hamburg. Við höfum spilað tvisvar áður hér í borg en ekki á þessum til­tekna stað. Þetta var gaman. Dagurinn fór ágæt­lega fram og allir voru mjög svo starf­inu vaxnir, fyrir utan tækni­menn á sviði sem voru alveg stropaðir. Flexi lamdi það úr þeim í sánd­tékk­inu og hefndi sín svo með því að eyð­leggja eins og einn hátal­ara á gigg­inu sjálfu. Eða hluta úr hátal­ara, svo­kall­aðan tvíter. Og auð­vitað var það ekki vilj­andi, svona lagað getur jú alltaf gerst. En Skálmöld þarf sitt hljóð­ræna pláss sem Axel sér til að sé alltaf til staðar. Og stundum kostar það bara svo­lítið. En til að taka af allan vafa þá ger­ast svona hlutir auð­vitað við og við og hinar hljóm­sveit­irnar léku sér að því að spila gegnum tækin eftir þessa minni­háttar árás. Og giggið var gott. Greini­legt kveðjugigg fyrir Gunna og allt ein­hvern veg­inn á milljón. Ég held að þetta hafi allt verið aðeins hraðar en venju­lega. Stundum er þetta bara svona. Eftir tón­leik­ana hittum við alls­konar fólk, fullt af Íslend­ingum raunar sem var sér­lega skemmti­legt, en líka fólk sem hefur komið til Íslands eða hafði aðrar skemmti­legar sögur að segja. Gott mingl.

Klúbb­ur­inn við hlið­ina á staðnum sem við spil­uðum á heitir Indra. Hann er þekktur sem hinn frægi Bítla­klúbbur í Hamburg, stað­ur­inn sem The Beatles spil­uðu við­stöðu­laust á í upp­hafi fer­ils­ins. Rétt fyrir brott­för kíktum við þangað inn. Hann er lít­ill. Hann er bara svona eins og Café Ros­en­berg að stærð á að giska. Við fengum okkur eins og einn bjór, snertum vegg­ina og spil­uðum Foosball. Og svo héldum við í rútu.

Á morgun spilum við í Eind­hoven. Ég man ekki nákvæm­lega hversu langt á að vera þangað en ferða­planið giskaði á átta tíma akstur. Við erum jafn­margir í rút­unni og síð­ast en nú hafa orðið grund­vall­ar­breyt­ingar. Ég vona að Halli vakni ekki of þunnur á morgun, það hlýtur að vera erfitt að sofa svona pass­lega rænu­mik­ill sína fyrstu nótt í koj­unni. Ég veit að þetta verður góður túr það sem eftir lifir en ég ætla ekki að fela það að þetta er skrýtið.

Þetta var pínu erfið færsla. Ég er drukk­inn og nú er klukkan 3.04. Venju­lega tekur ekki svona langan tíma að skrifa þessar færslur. Við erum allir hér frammí, nema Halli vit­an­lega, en Baldur og Þrábi hafa verið svona sitt á hvað í koju og ekki. Þetta var góður dagur en markar tíma­mót. Ég vona að við stoppum fljót­lega því raun­vínið er búið og ég þarf að pissa.

Meist­ara­legt dags­ins: Halli.

Sköll dags­ins: Gunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár