Tók með sér viðskiptasambönd frá PWC

Fyrr­ver­andi starfs­maður PWC á Akureyri og jafn­framt einn hlut­hafa, Davíð Búi Hall­dórs­son, var á fimmtu­dag­inn dæmdur í Hæsta­rétti til þess að greiða PWC 2,6 millj­ónir króna vegna þess að hann stofn­aði nýtt fyr­ir­tæki í sam­keppn­is­rekstri við PWC, og tók meðal ann­ars með sér við­skipta­sam­bönd sem áður til­heyrðu PWC. Auk þess var Davíð Búi dæmdur til þess að greiða PWC eina milljón í máls­kostnað vegna rekst­urs máls­ins fyrir Hæsta­rétti, en í Hér­aðs­dómi Norð­ur­lands eystra var hann dæmdur til þess að greiða PWC 1,8 millj­ónir, og var sá dómur stað­festur.

Forsaga máls­ins er sú að Davíð Búi sagði upp störfum hjá PWC 29. maí 2012 og stofn­aði skömmu síðar fyr­ir­tækið Enor, sem sinnir end­ur­skoð­un­störfum og ráð­gjöf. Þrír aðrir starfs­menn PWC sögðu einnig upp störfum og ætl­uðu sér að starfa hjá hinu nýju fyr­ir­tæki. Í dómi Hæsta­réttar kemur fram að margir fyrr­ver­andi við­skipta­vinir PWC á Akureyri séu nú við­skipta­vinir Enor en strax í kjöl­far upp­sagnar Davíðs Búa blossuðu upp deilur um hvort lög­lega hefði verið staðið að málum, ekki síst í ljósi samn­ings­á­kvæðis í ráðn­ingsamn­ingi Davíðs Búa við PWC sem tekur til sam­keppn­is­rekstrar. Í því segir: „Ef hlut­hafi hættir störfum hjá félag­inu en heldur áfram störfum á sama sviði og tekur með sér við­skipta­menn frá félag­inu, innan þriggja ára frá útgöngu, eða verði upp­vís að því að valda félag­inu tjóni við útgöngu úr félag­inu t.d. með því að beina við­skipta­vinum þess til sam­keppn­is­að­ila, er hann skaða­bóta­skyldur gagn­vart félag­inu og getur félagið kraf­ist bóta sem nema tekjum síð­ustu 12 mán­aða vegna vinnu félags­ins fyrir við­skipta­mann­inn.“

Í dómi Hæsta­réttar segir að sannað þyki, meðal ann­ars með vísan í fyrr­nefnd orð í samn­ingi, að Davíð Búi hafi tekið við­skipta­vini frá PWC, og þannig verið bóta­skyldur gagn­vart PWC vegna þessa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár