Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Bremen

Ég vakti fram­eftir. Við höfðum net í rút­unni og ég var lang­síð­astur í koju, enda lang­síð­astur á lappir í gær. Ég horfði á vídeó og gerði alls­konar mis­gáfu­lega hluti sem maður gerir á inter­net­inu. Þynnku­dauður og hálf­tómur. Svo fór ég bara að sofa. Rútan hreyfði sig úr stað fljót­lega eftir það en ég man ekki mikið meira. Ég var ekki fullur. Ég var bara þreyttur. Og bug­aður.

Núna erum við í Bremen og klukkan er 1.09. Mér skilst að brott­för sé klukkan tvö. Ég ætti senni­lega að vera úti að drekka því hér um borð í rút­unni er ekk­ert að ger­ast. Robert er sof­andi, Þráinn er að remb­ast við Meist­ara­deild­ar­titil og Flex er að spila nam­mikrams­leik af Frozen-gerð. Hann var að lýsa því yfir að þetta væri erfitt. Þetta er ekki nokk­urt vit. Ég ætla að kíkja útfyrir og sjá hvort ég finn ekki partý. Já, ég er í stuði, það að er skammt stórra högga á milli. Sjáum til, sjáum til.

Snæbjörn fann partí og söngv­ari Eluveite bauð upp á eðal­vodka til að launa allt Opalið sem við höfum deilt fal­lega með sam­ferða­fólki okkar. Það síð­asta sem hann sagði áður en ég rétti honum sneisa­fullt hvítvíns­glas af þessu góð­gæti var “æji vilt þú ekki bara klára bloggið”. Ég held hann hafi verið að grín­ast en það er bannað að breyta.

[caption id="attachment_12673" align="alignnone" width="3087"] Pitt­ur­inn![/caption]

Þetta var gott gigg. Við fengum því reyndar seinkað um hálf­tíma þar sem stað­ar­hald­arar höfðu aug­lýst að her­leg­heitin ættu að byrja kl 20:00 en skikkað okkur á svið hálf­tíma fyrr. Það sama var víst upp á ten­ingnum í gær sem er óþol­andi. Lesendur fyrri blogga muna kannski eftir því að þetta gerð­ist líka á síð­asta túr í Vín. Þar fengum við kvart­anir frá fólki sem hafði komið að sjá okkur en rétt náð sein­asta lagi. Nú höfum við Flexa með okkur sem barði í borðið og fékk þessu breytt. Mik­il­vægur maður hann Flexi okkar, Tibor sem heldur um stjórn­ar­tauma ferða­lags­ins var með okkur í liði í þessu. Reyndar eru allir orðnir mann­eskju­legri og búnir að átta sig á því að það sem er gott fyrir okkur er líka gott fyrir túr­inn. Þetta er það sem við leggjum út með í hvert sinn að vinna okkur inn virð­ingu og traust allra sem með okkur ferð­ast með því að skila okkar 100% á hverju kvöldi og vera almennt við­kunna­legir og lausir við vesen og við virð­umst hafa landað því í enn eitt skiptið. Brem­en­búar voru kátir og í stuði fullur salur og við spil­uðum eitt af okkar bestu giggum til þessa. Fallegt fólk og alveg til í að skemmta sér með hljóm­sveit sem fæstir höfðu heyrt í.

Eftir gigg var slegið upp fót­bota­spils­móti sem byrj­aði sak­leys­is­lega en keppn­is­skapið var fljótt að hlaupa í menn. Þeir svilar kepptu við mig og Baldur fyrstu leik­ina og strax í öðrum leik var alveg ljóst að hér voru menn ekki að skemmta sér. Þetta var ekki leikur þetta var stríð, mik­ill sviti, og sterkar til­finn­ingar. Áður en bandið leyst­ist upp var ákveðið að skora á rúss­ana í lands­leik sem skemmst er frá að segja að við rúst­uðum. (JGJ)

Klukkan er 1.58. Þetta var allt saman ljóm­andi. Jón Geir lýsti þessu mjög vel hér að ofan. Ég er þétt­á­gætur, þetta var skemmti­legt. Og núna erum við í rútu. Ég veit ekki hvar Baldur er en við hinir erum hér frammí. Robert var að búa sér til kaffi, núna er Gunni að búa til kaffi halda okkur hinum. Stóra rútan var að leggja frá, við keyrum um leið og Robert er búinn að koma sér fyrir. Við erum í Bremen og hér var gaman að spila. Hér höfum við ekki spilað fyrr. Land­vinn­ingar.

Þessi dagur var alveg týpískur túr­dagur. Ég sá ekk­ert hér í borg. Ég sá ekki einu sinni fremri helm­ing­inn af tón­leika­staðnum fyrr en ég fór að pissa eftir gigg. Baldur var að kúldr­ast hér inn í rút­una rétt í þessu, hann var að brenna þá sokka sem fund­ust á gólf­inu í dag. Þetta er orðið ákveðið ritúal. Ekki skilja sokk­ana eftir á gólf­inu, þá hendir Robert þeim út á plan, Baldur pikkar þá upp og brennir þá.

Maðurinn sem keyrir sendi­bíl­inn, sá sem við munum ekki hvað heitir en varð þess vald­andi að við settum ekki röra­sprengju í tank­inn á bílnum hans, hann er skemmti­legur. Maður á miðjum aldri og pass­lega talandi á ensku. Á rauð­víns­fyll­er­ínu í Barcelona pikk­aði hann upp eitt orð á íslenska tungu. Hvern ein­asta morgun mætir hann okkur og segir af festu: „Hérna!” Hérna. Hið nýja halló. Í hina átt­ina má nefna að Marci, mónitor­maður allra tíma, býður okkur aldrei skál nema að segja: „Ekki segj’etta“. Hann er reyndar að tala sitt móð­ur­mál, ung­versku, en þetta hljómar víst svipað. Skál það er að segja. Skál á hans tungu.

Og hér fékk ég kaffi. Nýmalað kaffi. Ég veit ekki hvað við gerum eftir að Gunni hverfur frá okkur, hann er kaffi­meist­ari rút­unnar og gerir hlut­ina vel. Jebb, við eigum bara tvö gigg eftir með Gunna. Meira um það síðar.

[caption id="attachment_12361" align="alignnone" width="4896"] Bibbi, þungur á brún, en þó léttur í lund.[/caption]

Túrinn er rétt að verða hálfn­aður. Þetta er alltaf tím­inn þar sem byrjar að hrikta í. Margar vikur búnar, margar vikur eftir, nýja­brumið horfið og dag­arnir eins. Við höfum svo­lítið verið að ríf­ast síð­ustu daga. Ekki kannski ríf­ast, en alla­vega kíta. Ég varð til dæmis vitni að því að Flexi og Þráinn voru ekki sam­mála um hvernig raða ætti dót­inu í kerruna. Hvorugur hafði rangt fyrir sér. Og það er hérna sem skilur að. Nú þurfa menn að leggja sig fram við að þola hvern annan. Og það gengur vel. Öll deilu­mál eru tækluð um leið og þau koma upp og allir gera sitt allra besta. Nákvæm­lega núna er tím­inn þar sem ég sann­fær­ist um að Skálmöld er besta hljóm­sveit í heimi. Hér sitjum við allir frammí, klukkan sýnir mér 2.18, og við vorum að leggja af stað. Hvert eitt og ein­asta gigg á þessum túr hefur verið frá­bært og það er bara vegna þess að við látum það ger­ast, stemn­ingin er alger og allt þetta hrein­lega eitt­hvað sem er ekk­ert minna en for­rétt­indi að fá að upp­lifa. Við erum allir gríð­ar­lega ólíkir, höfum mis­jöfn gildi og skyldur, eigum okkar líf heima sem þarf að sinna og allir leggja sig fram við það. Í sam­vinnu við hið frá­bæra fólk sem okkar bíður heima leggjum við það á okkur af fullum áhuga að kúldr­ast í þröngri rútu til að spila fyrir þá sem vilja heyra. Nú rétt í þessu leit ég upp frá tölv­unni. Hér allt í kringum mig sitja bestu menn sem ég hef kynnst. Við höfum eitt mis­sjón, mis­sjónið að vera besta hljóm­sveit í heimi og skemmta okkur á meðan. Vonandi náum við að deila erind­inu með sem flestum, en hvernig sem fer þá er nákvæm­lega þessi stund hér í rút­unni það sem máli skiptir. Hér eru vinir á ferð, vinir sem hafa eitt sam­eig­in­legt mark­mið. Ég óska öllum þess að upp­lifa eitt­hvað þessu líkt í líf­inu. Nú ætla ég að hætta að skrifa og skála við vini mína. Þetta var góður dagur. Fábrot­inn vissu­lega, en alger­lega frá­bær.

Meist­ara­legt dags­ins: Núna.

Sköll dags­ins: Ekkert. Ég er bara glaður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár