Björn Ingi tekur yfir DV

Pressan ehf., móð­ur­fé­lag Vef­pressunnar og vef­miðl­anna Pressunnar, Eyjunnar og Bleikt, hefur náð sam­komu­lagi við eig­endur meiri­hluta hluta­fjár í útgáfu­fé­lag­inu DV ehf. um kaup á ráð­andi hlut í félag­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Björn Ingi Hrafns­son, eig­andi Pressunnar, sendi fjöl­miðlum nú rétt í þessu. Þar kemur jafn­framt fram að með kaup­unum sé útgáfu DV og dv.is tryggð til fram­tíðar og DV verið áfram rekið sem sjálf­stæður og óháður fjöl­mið­ill.

Með kaup­unum er Pressan ehf. orðin eig­andi ríf­lega tveggja þriðju hluta­fjár í DV ehf. og hafa við­skiptin verið til­kynnt, lögum sam­kvæmt, til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og Fjöl­miðla­nefndar. Sam­run­inn kemur ekki til fram­kvæmda fyrr en Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur sam­þykkt kaupin.

Núver­andi stjórn­ar­for­maður DV Þor­steinn Guðnason mun áfram eiga sæti í stjórn félags­ins og Steinn Kári Ragn­ars­son verður fram­kvæmda­stjóri. Þá mun Hall­grímur Thor­steins­son, nýráð­inn rit­stjóri DV, gegna stöð­unni áfram.

Björn Ingi Hrafns­son, stjórn­ar­for­maður Pressunnar og Vef­pressunnar, verður útgef­andi DV og stjórn­ar­for­maður félags­ins. Í áður­nefndri til­kynn­ingu segir enn fremur: „Þegar sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins liggur fyrir verður nán­ari grein gerð fyrir marg­vís­legum áformum til að treysta rekstur blaðs­ins og sækja fram með nýstár­legum hætti til fram­tíðar. Jafn­framt verður gerð grein fyrir eign­ar­haldi eftir þessar breyt­ingar í sam­ræmi við lög um Fjöl­miðla­nefnd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár