Pæling dagsins: ÖBÍ hefði átt að hjóla í Vigdísi en sleppa Pétri

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Öryrkja­banda­lagið (ÖBÍ) gerði mikil mis­tök þegar það ákvað að taka Pétur H. Blöndal, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, út sér­stak­lega í aug­lýs­inga­her­ferð. Að mati bréf­rit­ara á Pétur ekki skilið að vera harð­lega gagn­rýndur af Öryrkja­banda­lag­inu. Sér­stak­lega ef horft til stærsta máls rík­is­stjórn­ar­innar á þessu kjör­tíma­bili, sem hún kýs að kalla leið­rétt­ing­una, en það er aðgerð sem miðar að því lækka höf­uð­stól verð­tryggðra skulda 28 pró­sent heim­ila með um 80 millj­arða fram­lagi úr rík­is­sjóði, óháð því hvort fólkið sem stofn­aði til skuld­anna sjálft á eigin ábyrgð, þarf á fram­lag­inu að halda eða ekki. Í þessum aðgerðum er öryrkjum, sem margir hverjir búa í leigu­hús­næði og reiða sig á vel­ferða­kerfi rík­is­ins, gjör­sam­lega haldið úti í kuld­anum og þeim raunar sýnd dæma­laus lít­ils­virð­ing, þar sem íslenskir millj­óna­mær­ingar fá tugi millj­arða úr rík­is­sjóði á meðan öryrkjar fá ekk­ert. Pétur H. Blöndal barð­ist gegn þessum ótrú­legu aðgerðum og tók þannig stöðu með öryrkjum í reynd. Öryrkja­banda­lagið er í fullum rétti að gagn­rýna Vigdísi Hauks­dóttur, for­mann fjár­laga­nefndar, sem hefur stundum talað um mik­il­vægi ráð­deildar í rík­is­rekstri, en stendur svo að því með félögum sínum að senda öryrkjum kaldar kveðjur með hinni svoköll­uðu leið­rétt­ingu. En Pétur á þetta ekki skilið.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár