Borga tvöfalt hærri upphæðir í arðgreiðslur en veiðigjöld

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið HB Grandi greiddi eig­endum sínum 2,7 millj­arða króna í arð á síð­asta ári, en félagið greiddi 1,3 millj­arða í veiði­gjald og sér­stakt veiði­gjald árið 2013. Þetta kemur fram á for­síðu Frétta­blaðs­ins í dag.

Þar kemur fram að arð­greiðslur stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna séu tvö­falt hærri en greiðslur í veiði­gjöld. Samherji og Síld­ar­vinnslan hafi greitt eig­endum sínum tvo millj­arða króna í arð hvort fyr­ir­tæki á síð­asta ári, en Samherji greiddi rúmar 890 millj­ónir króna í veiði­gjöld og Síld­ar­vinnslan tæp­lega 720 millj­ónir. Ísfé­lagið greiddi fjórðu hæstu veiði­gjöldin, eða sam­tals 709 millj­ónir króna, en félagið er í ell­efta sæti yfir kvóta­hæstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins.

Samkvæmt frétt Frétta­blaðs­ins horfir málið öðru­vísi við þegar horft sé til félag­anna Þor­björns í Grinda­vík og FISK Seafood á Sauð­ár­króki. Þorbjörn greiddi engan arð en greiddi 365 millj­ónir króna í heild­ar­veiði­gjöld á síð­asta ári, á meðan FISK Seafood greiddi 333 millj­ónir króna í heild­ar­veiði­gjöld en 266 millj­ónir rúmar í arð.

Samkvæmt skýrslu Íslands­banka um sjáv­ar­út­veg­inn, sem kom út í gær, námu opin­ber gjöld sjáv­ar­út­vegs­fé­laga 28 millj­örðum króna á síð­asta ári. Þar vó veiði­gjaldið þyngst, var um 9,7 millj­arða króna, það er 4,9 millj­arðar vegna almenns veiði­gjalds og 4,8 millj­arðar vegna sér­staks veiði­gjalds.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár