Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Herford

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Sjitt ég var þunnur í dag. Þetta leyst­ist allt saman upp í stjórn­litla vit­leysu sem við flestir tókum harka­legan þátt í. Ætli Þráinn hafi ekki verið frekar rólegur, mig minnir það. Og Jón, hann var pass­legur. Og Flex líka. En ekki við hinir.

Við blésum til sóknar eftir að giggið klárað­ist og drukkum með sam­ferða­fólki okkar fyrir aftan tón­leika­stað­inn. Það var fjandi gaman. Fæstir úr stóra band­inu létu þó sjá sig og alls ekki allir Rúss­arnir. En við afgreiddum þetta skil­merki­lega með tækni­fólk­inu og far­ar­stjórn­inni. Ég man ekki alveg hvenær við lögðum af stað en það gæti hafa verið klukkan þrjú í nótt. Þá sett­umst við hér í setu­stofu rút­unnar og spil­uðum tón­list. Já og drukkum meira. Miklu meira. Og þetta var alveg all in. Einhver gubb­aði í kló­settið. Einhver hellti eins og einni vatns­flösku yfir koj­una hans Jóns. Og eitt­hvað miklu fleira. Undir morgun man ég eftir okkur bræðrum inni í sjoppu. Ég held að ég hafi keypt rauð­vín. Eitt er þó víst að við keyptum bleikan hund til að gefa Robert. Þetta er svona stytta sem kinkar koll­inum við hreyf­ingu og er með svip. Hann er með ól um háls­inn og á merk­inu stendur „TUSSI ON TOUR“. Jebb. Tussi. Hann heitir það. Tussi situr á mæla­borð­inu og fylgist með veg­inum. Tussi.

Hér veltur Baldur inn í rút­una hvar ég sit og skrifa. Hann og Böbbi eru komnir í bjór­inn. Það er ótrú­legt. Klukkan er 00.28 og mig langar ekk­ert í bjór. Ekkert.

[caption id="attachment_12584" align="alignnone" width="3264"] Snæbjörn Ragn­ars­son, Bibbi, með mik­il­vægt skegg í mik­il­vægum bol.[/caption]

Eftir að við keyptum Tussa man ég ekki alveg hvað gerð­ist. Ég man að ég ætl­aði að lifa þar til við kæm­umst á leið­ar­enda og þá mér sagt að það væri hálf­tími eftir. Og svo vakn­aði ég í koj­unni minni klukkan fimm í dag. Í app­el­sínu­gulu Pollapönks-ull­ar­peys­unni minni og ofan á sæng­inni. Þetta var svona móment þar sem maður veit ekki hvernig ástandið er. Ég var klár­lega ekk­ert edrú. Og svo bara seig á verri hlið­ina. Það var auð­vitað ekk­ert langt í gigg og fljót­lega eftir að ég nudd­aði úr aug­unum vorum við komnir upp á svið í sánd­tékk. Stórt og gott svið og sal­ur­inn soldið eins og Nasa. Sviðið var nógu stórt til að við gætum haft trommu­settið fyrir miðju, fyrir framan trommu­pall­inn ógur­lega. Ætli þetta sé ekki í annað skipti á túrnum sem það ger­ist. Þetta er betra þannig. Og allt gekk vel fyrir sig bara. Og svo kom pasta. Ljómandi pasta alveg hreint. Ég keyrði í mig smá verkja­lyf og þrjá bjóra fyrir gigg. Það hjálp­aði nú alveg eitt­hvað held ég en giggið var samt sem áður erfitt. Við þurftum aðeins að hafa fyrir þessu, draga fólkið niður af vængj­unum og út á gólf. En það gekk alveg og þetta end­aði sem þrus­ugigg. Ljómandi alveg og ég þá búinn að svitna slatta af þynn­kunni út. En alls ekk­ert öllu saman. Við pökk­uðum og ég hélt beint inn í rútu. Og þar er ég nú eig­in­lega búinn að vera bara. Ég er meira að segja enn í gigggall­anum en líð­anin er nú svo sem alls ekk­ert slæm. Þetta verður rólegt kvöld hjá mér samt.

[caption id="attachment_12585" align="alignnone" width="4896"] Og slaka...[/caption]

Planið er að leggja í hann klukkan átta og keyra til Bremen. Það getur því varla verið langt. Þetta þýðir að við sofum í kyrr­stöðu sem er, ótrú­legt en satt, eitt­hvað sem mér finnst mun verra en að sofa á hreyf­ingu. Ég veit ekki nákvæm­lega hvað það er. Mögulega er þetta bara eins og að láta vagga sér í svefn. Vaggið er reyndar svo­lítið harka­legt stundum, svo harka­legt að ég sef yfir­leitt í læstri hlið­ar­legu. Mik­il­vægt tips fyrir þá sem sofa í rútum, hlið­ar­legan. Loft­leysi gæti líka verið partur af þessu. Þegar við hreyf­umst er ein­hvern veg­inn ferskara loft sem kemur inn um loft­ræst­ing­una. Samt held ég nú að aðal­málið sé hversu þétt við sofum. Þarna eru níu kojur, átta af þeim í notkun, örþunnt tjald dregið fyrir hverja og því óskap­lega lítið sem aðskilur okkur. Hrotur, byltur og fret eru ekki eins greini­legar þegar við erum á ferð­inni. Ég veit að ein­hverjir sofa með eyrnatappa. Ég sef nú samt alltaf eins og barn.

Ég gleymdi auð­vitað einu. Ég fór á McDonalds. Aftur! Þvílík upp­gjöf. Ég er brjál­aður. Og núna fannst mér þetta betra en síð­ast. Fíkni­efni, það er það sem þetta er. Baldur og Böbbi voru að koma hér inn í rút­una. Baldur borð­aði fjórar mál­tíðir rétt í þessu. Það er nú bara hættu­legt. Fyrir okkur alla. Helvítis!

Við van­mátum varn­ings­málin okkar harka­lega. Við erum ekki hálfn­aðir og upp­lagið af nýju plöt­unni er búið. Við erum með tvær týpur af bolum og önnur teg­undin er að klár­ast. Böbbi er búinn að standa í alls­konar stappi til að redda meira. Vonandi skilar þetta sér fljót­lega, ann­ars verðum við af hell­ings­sölu.

Ég hef ekk­ert að segja. Ég er bara heimskur og þunnur. Á morgun er Bremen. Ég ætla að horfa á vídeó.

Meist­ara­legt dags­ins: Fyllerí.

Sköll dags­ins: Þynnka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár