Fyrri eigandi að Laugavegi 4-6 í forsvari fyrir nýja eigendur

Einka­hluta­fé­lagið BAB Capital keypti fast­eignir við Laugaveg 4 og 6 og Skóla­vörðu­stíg 1A og reit­inn sem fast­eign­irnar standa á, fyrir 365 millj­ónir króna af Reykja­vík­ur­borg í lok sum­ars. Einka­hluta­fé­lagið er í eigu Bjarka Andrew Brynjars­sonar fram­kvæmda­stjóra Marorku. Reykja­vík­ur­borg reyndi að selja húsin í lok­uðu útboði, sem skil­aði ekki ásætt­an­legri nið­ur­stöðu. Tvær fast­eigna­sölur voru því fengnar til að afla til­boða, þrjú til­boð bár­ust og átti BAB Capital hæsta boðið. Eign­irnar eru nú komnar í eigu einka­hluta­fé­lags­ins L4, sem sömu­leiðis er í eigu sama aðila.

Fyrr­ver­andi eig­andi hús­anna, það er Jóhannes Sig­urðs­son sem seldi Reykja­vík­ur­borg fast­eign­irnar fyrir háar fjár­hæðir fyrir nokkrum árum, hefur kynnt sig sem for­svars­mann nýrra eig­enda í sam­skiptum við núver­andi leigu­taka á reitnum.

Umtöluðust fasteignakaup síðari ára


Reykja­vík­ur­borg eign­að­ist reit­inn og fast­eign­irnar í lok jan­úar árið 2008, í einum umtöl­uð­ustu fast­eigna­kaupum síð­ari ára, þegar hún greiddi hluta­fé­lag­inu Kaupangi, í eigu Jóhann­esar Sig­urðs­sonar, 580 millj­ónir króna fyrir húsin og lóð­ina. Kaupin voru gerð með sam­þykki þáver­andi borg­ar­stjóra, Ólafs F. Magn­ús­sonar. Vil­hjálmur Þ. Vil­hjálms­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri og odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í borg­ar­stjórn, sagði í fjöl­miðlum á sínum tíma að það hafi verið eitt helsta bar­áttu­mál Ólafs F. Magn­ús­sonar að húsin við Laugaveg yrðu end­ur­byggð sem næst sinni upp­runa­legu mynd. Ólafur F. sagði hins vegar að Vil­hjálmur hafi átt frum­kvæði að kaup­unum, og hann hafi keyrt málið áfram af mik­illi hörku.

Kaupangur komst í frétt­irnar í jan­úar árið 2011 þegar upp komst um að félagið lét Bókabúð Máls og menn­ingar, sem var í eigu Kaupangs, við Laugaveg greiða tæp­lega tvö­falt hærri húsa­leigu en Penninn-Eymunds­son greiddi fyrir húsa­leigu á sama stað. En Kaupangur átti sömu­leiðis hús­næðið. Um mán­uði síðar var Bókabúð Máls og menn­ingar tekin til gjald­þrota­skipta.

Kostnaður borgarinnar hleypur á hundruðum milljóna króna


Kostn­aður borg­ar­innar vegna fram­kvæmda sem ráð­ist var í á reitnum, þar sem meðal ann­ars húsin við Laugaveg voru færð í sína upp­runa­legu mynd, var áætl­aður um 130 millj­ónir króna árið 2011. Bókfært verð umræddra eigna var metið á um 728 millj­ónir króna hjá Reykja­vík­ur­borg. Húsin hafa verið leigð út síðan árið 2011. Til stóð að selja þau fyrir tæpu ári, en þá kom í ljós að leið­rétta þurfti deiliskipu­lag. Nýtt deiliskipu­lag var klárað, með tölu­vert minna bygg­inga­magni en upp­runa­legt skipu­lag gerði ráð fyrir, og nú ein­vörð­ungu undir versl­un­ar­hús­næði.

[caption id="attachment_12558" align="aligncenter" width="2500"] Tölvu­mynd af reitnum.[/caption]

Fyrri eigandi að eignast í fasteignunum aftur


Bjarki Andrew Brynjars­son, sem keypti umræddan reit af Reykja­vík­ur­borg nýverið eins og áður segir, á einka­hluta­fé­lagið Ívaf með áður­nefndum Jóhann­esi Sig­urðs­syni, fyrri eig­enda reits­ins. Jóhannes segir í sam­tali við Kjarnann að það hafi sterk­lega komið til tals milli hans og Bjarka Andrew, að félag þeirra komi að verk­efnum L4 ehf. á reitnum. Hann vill ekki útlista frekar mögu­lega aðkomu Ívafs ehf. að verk­efn­inu, hvort það hygg­ist kaupa hlut í L4 eða á hvaða verði. Fram til þessa hafi hann bara verið Bjarka til ráð­legg­ingar varð­andi kaupin, en þeir séu gamlir vinir.

Eins og áður segir hefur Jóhannes kynnt sig sem for­svars­mann nýrra eig­enda hús­anna í sam­skiptum við núver­andi leigu­taka á reitnum, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Þar hefur hann komið fram fyrir hönd félags­ins og kynnt leigu­tökum áform þess á reitnum laus­lega.

L4 ehf. hefur aug­lýst fast­eign­ina við Skóla­vörðu­stíg 1A til sölu og sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans er hún verð­met­inn af einka­hluta­fé­lag­inu á 200 millj­ónir króna.

[caption id="attachment_12554" align="aligncenter" width="360"] Skóla­vörðu­stígur 1A.[/caption]

Sem sagt; fast­eignir sem borgin greiddi 580 millj­ónir króna fyrir árið 2008, og varði 130 millj­ónum króna til að gera upp, voru nýverið seldar á 365 millj­ónir króna til ein­stak­lings með tengsl við fyrri eig­enda hús­anna. Eitt hús­anna er falt fyrir 200 millj­ónir króna sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, og þá hyggst núver­andi eig­andi ráð­ast í upp­bygg­ingu versl­un­ar­hús­næðis á reitnum.

Bjarki Andrew Brynjars­son svar­aði ekki skila­boðum Kjarnans við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár