Með áhuga á vélum og útgerð frá blautu barnsbeini

Stein­grímur Erlings­son, vél­fræð­ingur, frum­kvöð­ull og fram­kvæmda­stjóri Fáfnis Offshore, seg­ist ekki líta svo á að hann sé „stór­huga frum­kvöð­ull“ heldur hafi hann frekar mik­inn og ein­beittan áhuga á vélum, skipum og útgerð og hafi haft frá blautu barns­beini. Hann telji sig vera „þokka­legan“ í því sem hann er að gera og njóti þeirra for­rét­inda að starfa við það sem hann hafi áhuga á.

Hann seg­ist von­ast til þess að geta skráð skip Fáfnis Offshore sem íslensk í fram­tíð­inni og jafn­vel skrá fyr­ir­tækið á markað. Mikil tæki­færi séu fyrir hendi á Norð­ur­slóðum þegar kemur að þjón­ustu við iðnað sem þar er.

Fáfnir Offshore lét byggja dýrasta skip sem Íslend­ingar hafa byggt, sem kost­aði vel á átt­unda millj­arð, en fyr­ir­tækið þjón­ustar meðal ann­ars olíu- og örygg­is­þjón­ustu á Norð­ur­slóðum, sinnir meðal ann­ars þjón­ustu fyrir rúss­nesk fyr­ir­tæki og norsk. Skipið var sjó­sett í mars síð­ast­liðnum, og var smíðað í Tyrk­landi. Stein­grímur segir rekst­ur­inn ganga vel, enda sé lítið annað í boði þegar að þessu kemur. Miklar kröfur séu gerðar til fyr­ir­tækja sem þjón­usta stór olíu­fyr­ir­tæki um að rekst­ur­inn sé góður og stöð­ugur.

Þá er Steim­grímur einnig meðal eig­enda Biokraft ehf. sem ræsti nýjar vind­myllur í Þykkvabæ 23. sept­em­ber síð­ast­lið­inn en sam­an­lagt afl þeirra er 1,2 mega­vött. Biokraft hefur samið um að selja alla ork­una til ON. Hann hefur mikla trú á orku­fram­leiðslu með vind­myllum í fram­tíð­inni.

Í ítar­legu við­tali sem Björn Berg Gunn­ars­son, deild­ar­stjóri fræðslu- og við­skipta­þró­unar VÍB, tók, ræðir Stein­grímur um fjár­fest­ingar sínar og hug­myndir sem snúa að orku­geir­anum og útgerð á Norð­ur­slóðum.

https://vimeo.com/112291792

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár