Bibbi bloggar úr Evróputúr Skálmaldar: Leipzig

Skálmöld er nú á tæp­lega 7 vikna túr um Evrópu. Dagarnir eru afskap­lega við­burða­ríkir og aðstæður oft afskap­lega skemmti­legar. Snæbjörn, bassa­leik­ari og texta­höf­undur sveit­ar­innar, heldur úti dag­legu bloggi á vef Kjarnans þar sem hann lýsir hinu goð­sagna­kennda rokk­ara­lífi. Táfýla, blóð, sviti, tár og auð­vitað rokk & ról beint í æð.

Klukkan er núna 22.48 og Elu­veitie eru senni­lega komin eins og þriðj­ung inn í sitt sett. Þessi dagur var full­kom­lega tíð­inda­laus. Ég hlamm­aði mér út í rútu rétt í þessu til að skrifa færsl­una, strák­arnir eru inni á venjúinu og Robert er sof­andi. Bus Call er klukkan þrjú í nótt, þetta gæti endað með alls­herjaró­gæfu.

Spólum aðeins til baka, við áttum frí­dag í gær.

[caption id="attachment_12508" align="alignnone" width="3264"] Lista­verk. Fiskur.[/caption]

Planið var upp­haf­lega að keyra rút­una til Brugge og eyða deg­inum þar. Eftir að við höfðum ráð­fært okkur svo­lítið við Robert varð okkur ljóst að ferða­lagið frá Bristol til Leipzig væri af því kali­beri að við skyldum ekki búast við þæg­indum. Mér finnst við hafa verið keyr­andi í viku. Þetta rennur vissu­lega svo­lítið saman en senni­lega fór ég í koj­una fljót­lega eftir að ferjan lenti í Frakk­landi í gær­morgun og þar eyddi ég góðum tíma, mest­megnis sof­andi. Ég rumskaði í Antwerpen þar sem ferða­langar afréðu að stoppa, fundu sér sér­verslun með belgíska bjóra og byrgðu sig upp. Ég var svo nývakn­aður að ég nennti ekki með. Ég sá svo auð­vitað strax eftir því því allur næsti leggur fór í að opna og prófa allt góð­gætið. Ég fékk svona einn og einn frá strák­unum til að vera með. Ég reyndi að bera mig vel en var bara útundan. Ég þarf greini­lega að rækta alkó­hólist­ann í mér betur og hunskast með þegar bjór er ann­ars vegar. Og svo bara keyrðum við. Ég skil ekki hvar Robert fær alla þessa orku sem hann býr yfir. Hann vit­an­lega borðar ekk­ert nema geita­ost, fer næstum dag­lega út að hlaupa og gerir allt sem bækur og læknar segja að maður eigi að gera til lang­lífis. Maður ætti kannski að prófa þetta við tæki­færi. Það verður að segj­ast að líf­ernið á þeim er þetta skrifar er nú ekk­ert til fyr­ir­myndar þessa dag­ana. Ég drekk áfengi dag­lega, svo sem ekk­ert endi­lega í neinu magni sem hefði áhrif á með­al­vax­inn fíls­unga, en alltaf eitt­hvað þó. Þetta verður allt eitt­hvað svo aðeins bæri­legra þannig. „Að taka kúf­inn af“ var hug­tak sem ég heyrði ein­hvern tím­ann haft. Það gerir það, þetta jafnar ves­enið aðeins út. Mat­ar­lega verður að segj­ast að það sem í boði er er ekki alltaf frá­bært og stundum alls ekki nóg. Þess vegna fer maður stundum svangur að sofa. Svo stoppum við reglu­lega í vega­sjopp­unum og erum þá yfir­leitt á ferð­inni að næt­ur­lagi. Þá kaupir maður ekki alltaf gáfu­lega hluti. Þessi kíló sem ég náði af mér við þetta mara­þonæv­in­týri verða sjálf­sagt flest komin til baka þegar við náum heim. Og svo auð­vitað reyk­ing­arnar. Ég var einu sinni reyk­inga­maður en hætti því nú fyrir nokkuð mörgum árum. Á þessum Skálmald­ar­túrum hef ég þó alltaf reykt, slökkt í síð­ustu glóð­inni á flug­vell­inum áður en við höldum heim og hætt þar með. Og þannig verður það líka núna. Mikið djöf­ull er gott að reykja. En þetta fer ekk­ert vel með mann svo sem. Ég finn að í lengri söng­köfl­unum verð ég hálf­and­stuttur, en þó ekki þannig að ég missi úr, langt því frá. Þetta er ósiður, en þetta er bæði gott og gaman. Nú er málið þó þannig vaxið að Skálmaldar-úthöldin verða sífellt reglu­legri og tíð­ari. Þetta var skemmti­legt og hressandi þegar við fórum ekki nema endrum og sinnum en nú þarf ég að end­ur­skoða þetta. Ég drep alla­vega í á vell­inum í München þann 14. des­em­ber og drulla mér í rækt­ina. Seinna. Gamla góða seinna.

Um hvað í hel­vít­inu var ég aftur að tala?

Ah já, Robert. Ég er ánægður að hafa hann sem bíl­stjóra, svo mikið er víst. Og við keyrðum áfram. Þetta rennur aðeins saman, en í gær­kvöldi stopp­uðum við í ein­hverjum þýskum smábæ sem ég get ekki fyrir mitt litla líf munað hvað heitir. Þar fundum við kebab-stað sem var alveg ljóm­andi. Og svo keyrðum við bara áfram.

Ég próf­aði eitt sem ég hef ekki gert áður á tón­leika­ferðum, þótt ótrú­legt megi virð­ast. Ég horfði á vídeó í koj­unni. Það er magnað. Baldur bróðir hafði með­ferðis flakk­ara með alls­konar þjófstolnu efni og ég hlóð ein­hverju af þessu inn á tölv­una mína. Í mis­miklum hrist­ingi horfði ég á þrjár bíó­myndir í beit, Dredd (7,5), Heima (8,5) og Dark Skies (5). Ég á eftir að gera meira af þessu, það er alveg klárt. Ég eig­in­lega skil ekki að ég eigi allar þessar koju­legur að baki gegnum árin og hafi aldrei til­einkað mér þetta. En jújú, ég er svo sem búinn að lesa ein­hverja hillu­metra af teikni­mynda­sögum. Og svo bara keyrðum við. Ég man engin smá­at­riði.

[caption id="attachment_12511" align="alignnone" width="2981"] Stund milli stríða. Böbbi söngv­ari í róleg­heitum.[/caption]

Um hádegi lögðum við bílnum fyrir utan tón­leika­stað­inn hér í Leipzig. Sá heitir Hellra­iser og hér spil­uðum við árið 2011. Skammt er frá því að segja að þessi staður er almennt tal­inn algert ógeð í alla staði og ég man eftir því að fyrir þessum þremur árum var alveg hellað að spila hérna. Maturinn við­bjóður, skíta­kuldi um allt og almenn óþrif, tækni­fólkið og allar græjur í steik og stað­ur­inn sjálfur langt frá manna­byggðum. En þetta var ekk­ert svo slæmt í dag. Heima­menn hafa reyndar leyst kulda­ves­enið með því að ræsa stein­ol­íu­knúða hita­blás­ara hérna inn­an­húss á tón­leika­dag. Það hélt á okkur hita, en við eigum eftir að lykta eins og úti­grill í sirka viku. Meðan við biðum eftir föstum liðum laum­uðum við okkur, ég, Baldur, Flexi, Jón og Robert, inn í yfir­gefna járn­brauta­verk­smiðju sem stendur hér við hlið­ina á rút­unni. Hún hefur senni­lega verið yfir­gefin mid- eða örlínæntís ef ég ætti að giska. Við skoð­uðum þetta ver­elsi reyndar líka fyrir þremur árum, nema auð­vitað Felix og Robert sem voru ekki með okkur þá. Risa­stórt rými, senni­lega á við tvo fót­bolta­velli, verk­smiðja í full­kominni nið­ur­níðslu, brotnir gluggar, vaskar og kló­sett og allt ein­hvern veg­inn drauga- og nöt­ur­legt. Austur-Þýska­land.

Sánd­tékkið okkar var svo­lítið seint en gekk ágæt­lega. Elu­veitie voru nefni­lega að æfa inn nýjan mann, sekkja­pípu- og flautuleik­ara sem kemur inn í stað­inn fyrir Patrick. Sá er reyndar ráð­inn tíma­bund­inn. Já, þetta band virkar aðeins á mig eins og við­skipta­sam­band, ekki eins og hljóm­sveit. En það er nú svo. Við kláruðum hljóðprufu rétt fyrir settan tíma, ég reif í mig mat sem var hreint ekki afleitur, hopp­aði í tón­leikagall­ann og svo beint á svið.

Þetta var okkar fyrsta gigg í Þýska­landi á túrnum en alls ekki það síð­asta. Við erum rétt að verða hálfn­aðir og eins og svo oft áður hverf­ist næsti leggur um Þýska­land. Við eigum jafnan nokkur gigg hér, skreppum svo eitt­hvert annað og snúum aftur til Þýska­lands. Hér er mið­stöðin, þunga­miðjan og allur þessi fólks­fjöldi. Giggið var mjög svo gott. Senni­lega um 700 manns höfðu látið sig hafa það að mæta snemma og við rifum þau með okkur. Þetta var meist­ara­lega gaman!

Herford, auð­vitað í Þýska­landi, er áfanga­staður morg­un­dags­ins. Þangað höfum við aldrei komið svo það verður áhuga­vert. Í þessum skrif­uðum orðum heyri ég að Elu­veitie eru að klára Inis Mona og þar með settið sitt. Baldur var að egna mig til að koma og hitta fólk. Það er best að ég geri það.

Klukkan er 23.27. Framundan er 350 kíló­metra keyrsla sem hefst klukkan þrjú. Mig grunar að nú verði gaman.

Meist­ara­legt dags­ins: Vídeó!

Sköll dags­ins: Keyrsla, enda­laust keyrsla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár