Flestir vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni, en fæstir nota hann

Í nýrri við­horfskönnun Vega­gerð­ar­innar og MMR kemur fram að 62 pró­sent svar­enda eru á móti því að inn­an­lands­flug­völl­ur­inn fari úr Vatns­mýri. Mun fleiri svar­endur á lands­byggð­inni vilja halda flug­vell­inum. Eini stað­ur­inn á lands­byggð­inni þar sem ekki var meiri­hluta­stuðn­ingur við flug­völl­inn var í Reykja­nesbæ.

Samkvæmt könn­un­inni not­uðu 84 pró­sent svar­enda hins vegar ekki inn­an­lands­flug sem ferða­máta í sumar. Þeim sem nota inn­an­lands­flug hefur fækkað umtals­vert frá því að síð­asta könnun var gert. Um ell­efu pró­sent flugu einu sinni til tvisvar sinnum inn­an­lands í sumar og um fimm pró­sent svar­enda flaug þrisvar sinnum eða oftar. Þeir sem nota inn­an­lands­flug eru aðal­lega á miðjum aldri og með háar tekjur. Karlar nota inn­an­lands­flugið frekar en konur. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu.

[caption id="attachment_12482" align="alignnone" width="640"] Samvæmt könn­un­inni not­uðu 84 pró­sent svar­enda ekki inn­an­lands­flug sem ferða­máta í sumar. Þeim sem nota inn­an­lands­flug hefur fækkað umtals­vert frá því að síð­asta könnun var gert.[/caption]

Fleiri hafa skoðun á hvert flugvöllurinn á að fara


Í könn­un­inni var einnig spurt út í hvert ætti að flytja inn­an­lands­flug­völl­inn ef ákveðið yrði að færa hann. Flestir, eða 54 pró­sent, voru á því að inn­an­lands­flugið ætti að flytj­ast til Kefla­víkur. Tæpur fjórð­ungur nefndi Löngu­sker og tíu pró­sent Hólms­heiði. Í þess­ari könnun sögð­ust tólf pró­sent að þau vildu annað hvort að flug­völl­ur­inn færi „annað eða veit ekki“. Þegar sama spurn­ing var spurð árið 2010 svör­uðu 53 pró­sent með þeim hætti.

Þá voru þeir sem heim­sóttu höf­uð­borg­ar­svæðið spurðir hvert þeir ættu oft­ast erindi. Rúmur þriðj­ungur svar­aði því til að hann ætti erindi til borg­ar­innar vestan Kringlu­mýr­ar­brautar en tæpur þriðj­ugur átti oft­ast erindi milli Kringlu­mýr­ar­brautar og Ellið­vogs.

Um 1.200 manns tóku þátt könn­un­inni, sem var net­könnun. Könn­un­ar­staðir eru hinir sömu og áður, þ.e. höf­uð­borg­ar­svæðið, Árborg, Reykja­nes­bær og Akranes, sem í könn­un­inni eru nefndir jað­ar­byggðir höf­uð­borg­ar­svæðis, og Ísa­fjörður, Akureyri og Egils­staðir, sem nefndir eru lands­byggð­ar­kjarnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár