Styrmir verður umsjónarmaður í nýjum sjónvarpsþætti á RÚV

Nýr sjón­varps­þáttur í umsjón Boga Ágústs­sonar, frétta­manns og fyrr­ver­andi frétta­stjóra RÚV, Þór­hildar Þor­leifs­dóttur, fyrr­ver­andi leik­hús­stjóra Borg­ar­leik­húss­ins, og Styrmis Gunn­ars­sonar, fyrr­ver­andi rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, er í burð­ar­liðnum hjá RÚV, en umræðu­þátt­ur­inn hefur hlotið nafnið Hring­borðið.

Fyrsti þátt­ur­inn fer í loftið mánu­dags­kvöldið 8. des­em­ber næst­kom­andi, og verður fram­vegis mán­að­ar­lega á dag­skrá á eftir tíu-fréttum sjón­varps. Þátt­ur­inn er hug­ar­fóstur Magnúsar Geirs Þórð­ar­sonar útvarps­stjóra.

[caption id="attachment_12408" align="aligncenter" width="624"] Bogi Ágústs­son, frétta­maður og fyrr­ver­andi frétta­stjóri RÚV.[/caption]

Auk þre­menn­ing­anna verða tveir gestir í hverjum þætti, þar sem ýmist verða rædd helstu mál­efni líð­andi stundar, eða þau mál sem rit­stjórn þátt­ar­ins vill vekja umræðu um.

„Uppbyggilegur umræðuþáttur“


Útvarps­stjóri segir að þátt­ur­inn eigi að vera upp­byggi­legur umræðu­þáttur þar sem fólk með víð­tæka reynslu og þekk­ingu á íslensku sam­fé­lagi ræðir mál­efni líð­andi stundar. „Umsjón­ar­menn­irnir eiga það sam­eig­in­legt að hafa mikla yfir­sýn og muna tím­ana tvenna. Við von­umst til að þátt­ur­inn muni setja mál­efni dags­ins í dag í stærra sam­hengi og skauta hjá því arga­þrasi sem ein­kennir umræð­una oft og tíðum. Okkur hefur stundum þótt skorta nokkuð á að raddir hinna reynslu­meiri heyr­ist nægj­an­lega oft í íslenskum fjöl­miðlum en við teljum að með þessu séum við að vissu leyti að bæta úr því. Ég á því von á lit­ríkum og upp­byggi­legum umræðu­þætti þar sem tek­ist verður á af miklu krafti um þau mál­efni sem skipta þjóð­ina öllu máli, í dag og ekki síst til fram­tíðar litið,“ segir Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri.

Skarp­héð­inn Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri RÚV, segir umsjón­ar­menn þátt­ar­ins sann­ar­lega upp­fylla ofan­greindar kröfur. „(Þetta er) afar reynslu­mikið fólk sem á það sam­eig­in­legt að hafa betri og dýpri skiln­ing á íslenskum þjóð­málum en flestir aðrir og munu þau með aðstoð vel valdra við­mæl­enda sem flestir hverjir deila þess­ari reynslu – en eru ekk­ert endi­lega sam­mála þeim um hvernig túlka beri sög­una og hvaða lær­dóm við getum dregið af henni“ segir Skarp­héð­inn Guð­munds­son dag­skrár­stjóri RÚV.

Reynsluboltarnir Styrmir og Þórhildur


Þór­hildur Þor­leifs­dóttir er fædd árið 1945 og er því 69 ára gömul. Hún sat á Alþingi fyrir Kvenna­list­ann á árunum 1987 til 1991 og var á fram­boðs­lista Lýð­ræð­is­vakt­ar­innar í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum. Hún var kosin til setu á stjórn­laga­þingi, sem átti að gera til­lögur til breyt­inga á stjórn­ar­skrá Íslands, og var síðar skipuð í stjórn­laga­ráð sem hafði sama til­gang. Þór­hildur var, eins og áður segir, leik­hús­stjóri Borg­ar­leik­húss­ins á árunum 1996 til 2000.

[caption id="attachment_12409" align="aligncenter" width="624"] Þór­hildur Þor­leifs­dóttir, fyrr­ver­andi Borg­ar­leik­hús­stjóri.[/caption]

Styrmir Gunn­ars­son er fæddur 1938, og er því 76 ára gam­all. Hann hóf störf á Morg­un­blað­inu 2. Júní 1965 og varð rit­stjóri blaðs­ins 1972. Styrmir sat á rit­stjórn­ar­stóli í 36 ár. Hann lét af því starfi 2. júní 2008, nákvæm­lega 43 árum eftir að hann hóf störf á blað­inu.

Nýverið kom út bók eftir Styrmi sem heitir Í köldu stríði – Vinátta og bar­átta á átaka­tímum. Þar greinir Styrmir meðal ann­ars frá því að hann hafi hitt flugu­mann úr röðum komm­ún­ista um ára­bil og skrifað skýrslur um það sem mað­ur­inn sagði honum. Skýrsl­urnar voru sendar til Bjarna Bene­dikts­sonar, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, og Geirs Hall­gríms­sonar, þáver­andi borg­ar­stóra. Auk þess grun­aði Styrmi að skýrsl­unar hafi verið sendar í banda­ríska sendi­ráðið við Lauf­ás­veg. Efni þeirra birt­ist einnig í frétta­skrifum í Morg­un­blað­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár