Herferð til að koma í veg fyrir ofbeldi og gera borgir öruggari

Herferð UN Women á Íslandi um Öruggar borgir (e. Safe Cities Global Ini­ti­ative) hófst í dag og stendur yfir næstu daga. Markmið verk­efn­is­ins er að skapa konum, ung­lingum og börnum öruggt líf í borgum án ótta við ofbeldi.

[caption id="attachment_12432" align="align­right" width="150"] Inga Dóra Pét­urs­dóttir, fram­kvæmda­stýra UN Women.[/caption]

Hjarta her­ferð­ar­innar eru þrjú gagn­virk mynd­bönd sem segja þrjár stuttar sögur úr íslenskum raun­veru­leika. Mynd­böndin sýna þrjár konur á mis­mun­andi aldri í mis­mun­andi aðstæður sem verða fyrir mis­mun­andi kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Sá sem horfir á mynd­bandið sér atburð­ar­rás­ina á tölvu­skjánum sínum og með því að para snjall­sím­ann sinn saman við mynd­bandið getur við­kom­andi einnig séð sjón­ar­horn ger­and­ans í mynd­bönd­unum þremur. Síminn og fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Tjarn­ar­gatan fram­leiddu mynd­böndin.

Hægt er að horfa á mynd­bandið á heima­síðu her­ferð­ar­innar hér.

Hægt er að styrkja her­ferð­ina með því að senda sms-ið orugg­borg í síma­núm­erið 1900.

Ofbeldi gegn konum er heimsfaraldur


Í til­kynn­ingu vegna her­ferð­ar­innar segir Inga Dóra Pét­urs­dóttir, fram­kvæmda­stýra UN Women, að ofbeldi gegn konum sé heims­far­aldur. „Óhætt er að segja að það ríki neyð­ar­á­stand í stór­borgum víðs­vegar um heim­inn þar sem konur og stúlkur eiga erfitt með að ferð­ast til og frá vinnu eða sækja skóla vegna ótta við ofbeldi og áreitni í almenn­ings­rýmum. Meira að segja í örugg­ustu borgum heims eins og Reykja­vík verða konur fyrir ofbeldi af ýmsu tagi.“

[caption id="attachment_12433" align="align­right" width="150"] Orri Hauksson, for­stjóri Símans.[/caption]

Orri Hauksson, for­stjóri Símans, tekur í sama streng og segir að ofbeldi gegn konum sé alþjóð­legt vanda­mál sem við­gengst í öllum sam­fé­lögum. „Með þessu átaki tökum við hjá Símanum höndum saman við UN Women við að vekja athygli á því að þetta er sam­fé­lags­legt mein hér á Íslandi, ekki síður en ann­ars staðar. Afrakst­ur­inn rennur svo þangað sem hans er mest þörf.“

Reykja­vík­ur­borg mun í næstu viku skrifa undir samn­ing um að höf­uð­borg lands­ins verði örugg borg. Þar með gengur hún í hóp 18 borga víðs­vegar um heim­inn sem hafa heitið hinu sama.

Á meðan að her­ferðin stendur yfir munu fjöl­margir pistlar um öruggar borgir birt­ast á heima­síðu Kjarnans. Hægt er að lesa meira um her­ferð­ina og styrkja sam­bæri­lega verk­efni í fátæk­ustu löndum heims á heima­síðu lands­nefndar UN Women á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár