Breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfi í burðarliðnum

Sigurður Ingi Jóhanns­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra kynnti frum­varps­drög um nýtt fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfi og álagn­ingu veiði­gjalda á fundi með þing­mönnum beggja stjórn­ar­flokk­anna í gær. Krafist var trún­aðar um inni­hald frum­varps­ins. Morg­un­blaðið greinir frá þessu í dag, en RÚV sagði frá mál­inu í gær.

[caption id="attachment_12371" align="align­right" width="150"] Jón Gunn­ars­son.[/caption]

Frum­varpið er afleið­ing af vinnu nefndar á vegum þeirra. Leið nefnd­ar­innar bygg­ist á kvóta­kerf­inu með þeirri breyt­ingu að nýt­inga­samn­ingar við útgerð­ar­fyr­ir­tæki verði teknir upp í stað þess að afla­heim­ildum verði úthlutað með þeim hætti sem gert er í dag. Samkvæmt frétt Morg­un­blaðs­ins var ekki sátt í sátt­ar­nefnd­inni svoköll­uðu um til hversu margra ára nýt­ing­ar­samn­ingar ættu að ná en rifjað er upp að Sigurður Ingi hafi sagt á aðal­fundi LÍÚ í fyrra að til að skapa nauð­syn­lega festu væri eðli­legt að útgerðir fengju rétt til 20-25 ára, með skýrum fram­len­ing­ar­á­kvæðum.

Í Morg­un­blað­inu er rætt við Jón Gunn­ars­son, for­mann atvinnu­vega­nefndar Alþingis. Þar segir hann að það verði að búa til rekstr­ar­um­hverfi fyrir sjáv­ar­út­vegin þannig að bankar og lána­stofn­anir séu til­búnar að lána fyr­ir­tækjum í grein­inni til upp­bygg­ingar. Vinnan er ekki komin það langt að farið sé að ræða upp­hæð veiði­gjalda. Jón lýsir þeirri skoðun sinni að veiði­gjöldin megi ekki vera íþyngj­andi fyrir sjáv­ar­út­vegin og að það verði „að leiða fram krafta grein­ar­innar til að standa að öfl­ugri end­ur­nýjun og fjár­fest­ingum til að fyr­ir­tækin geti stað­ist alþjóð­lega sam­keppni með afurð­irnar“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár