Besti vinur barnanna

Þorgeir Tryggva­son, Toggi, mun sinna bókaum­fjöllun fyrir Kjarnann fram að jólum en margar bækur eru að koma út þessa dag­ana. Jóla­bóka­flóðið nær svo hámarki í des­em­ber.

Guðrún Eva Mínervu­dóttir

Englaryk

Höfundur: Guðrún Eva Mínervu­dóttir

Útgef­andi: JPV

Þegar trú­mál eru til umræðu erum við orðin vön tryll­ingi. Facebook-froðu­fell­ingum og gagn­kvæmum ásök­unum um óheil­indi og heimsku. Fyr­ir­litn­ingu á báða bóga. Að ógleymdri hinum þreyt­andi und­ir­liggj­andi deilum um hvor aðil­inn sé minni máttar og eigi undir högg að sækja. Sums­staðar flýtur blóð í boði þess­ara deilna.

Fyrir nú utan þann trú­ar­lega vinkil sem er á átök­unum á stærstu víg­völlum nútím­ans, þó aftur megi ríf­ast um hvort hann er rótin eða felu­lit­irnir.

Það er kannski þess vegna sem hin lág­væra stemm­ing Englaryks Guðrúnar Evu Mínervu­dóttur – tíð­inda­leysi jafn­vel – kemur manni á óvart og veldur jafn­vel dálitlum von­brigðum. Það gekk til dæmis öllu meira á í síð­ustu bók um trú­ar­deilur í Stykk­is­hólmi, þegar sumir vildu nota sem úti­kamar nesið sem aðrir höfðu helgað guði sínum.

Það tekur smá stund að stilla við­tækið, eig­in­lega komst þessi les­andi varla í almenni­legt sam­band við bók­ina fyrr en að henni les­inni. Því hún neitar að fara.

Við erum stödd í fjöl­skyldu í lág­semmdri krísu, sem þyk­ist vera hástemmd. Í Stykk­is­hólmi. Dóttirin Alma, á ferm­ing­ar­aldr­inum, hefur fengið vitrun. Jesú birt­ist henni þar sem hún hafði orðið við­skila við fjöl­skyldu sína í sum­ar­fríi í Cadiz. Síðan reynir hún að fylgja í fót­spor hans, og fyrir utan ein­staka predik­anir og rifr­ildi við útbrunn­inn prest­inn í ferm­ing­ar­fræðsl­unni hefur hún stigið væg­ast sagt rót­tækt skref. Svo rót­tækt að fjöl­skyldan leggst á bekk hjá fjöl­skyldusál­fræð­ingi í Reykja­vík.

Þarna er kom­inn sögurammi og form sem Guðrún fer vel með, nýtir en lætur aldrei taka af sér ráðin. Við fylgj­umst með brasi og hugs­unum allra fjöl­skyldu­með­lima (for­eldrar, eldri hálf­bróðir, yngri bróðir og Alma sjálf) auk þess sem við fylgj­umst með heim­sóknum þeirra hjá Snæfríði, sem reyndar teng­ist fjöl­skyld­unni sjálf, á máta sem verður að telj­ast á gráa sið­ferð­is­svæð­inu fyrir þerapista.

Og svo gengur lífið fyrst og fremst sinn vana­gang. Þetta er bæði mjög venju­leg og óvenju­leg fjöl­skylda, og þó svo það séu áreynslu­punktar í henni þá gæti ég trúað að ansi margir væru til­búnir að skipta við hana. Hlutir jafna sig, fólk talar saman, nýtur sam­vist­anna. Lífið gengur sinn gang. Þrátt fyrir Jesú, eða kannski á hans vegum, eng­inn veit. Nema þá Alma. Eða kannski einmitt ekki hún.

Öllu þessu segir Guðrún Eva frá af yfir­vegun hins flinka höf­undar. Eins og henni gæti ekki verið meira sama um vænt­ingar les­end­ans til höf­undar hryll­ings­leik­húss­ins í Yosoy eða kyn­lífs­dúkku­smiðs­ins í Skap­ar­anum. Hún er með sínu fólki í Stykk­is­hólmi, fylgist með hvunn­dags­bjástri þess og nún­ingnum sem vitrun dótt­ur­innar skapar, en alls ekki bara því. Allir fá sitt pláss, sín verk­efni, sína leið í gegnum þessa daga. Þetta er allt mjög sann­fær­andi og Guðrún Eva vinnur vel með sína “„lík­am­legu“, manni liggur við að segja „líf­eðl­is­fræði­legu“ nálgun á til­finn­ingar:

Sárindin og von­leysið þrengdu að önd­un­ar­vegi hennar innan frá, eins og háls­bólga. (bls. 73)

Það fauk í hann en að gerð­ist svo sjaldan að hann vissi varla hvaða til­finn­ing það var; þessi málm­kenndi, storkn­andi hiti sem vall um brjóst og höfuð. (bls. 114)

Sögu­sviðið er vel valið og það er afrek að lýsa og nýta sér and­rúms­loft og lífs­hætti smá­bæj­ar­ins jafn sann­fær­andi en þó klisju­frítt og hér er gert. Englaryk er ljúf bók um lág­stemmd svör við stærstu spurn­ing­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár