Mannréttindadómstóll Evrópu vísar frá kæru Ingólfs Helgasonar

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu (MDE) hefur vísað frá máli Ingólfs Helga­sonar á hendur íslenska rík­inu þar sem úrræði fyrir íslenskum dóm­stólum hafi ekki verið tæmd. Þetta kemur fram á heima­síðu Lands­laga. Ingólf­ur Helga­son er fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings banka hf. á Íslandi og sætir ákæru fyrir meinta mark­aðs­mis­notkun og umboðs­svik í starfi sínu, ásamt átta öðrum starfs­mönnum bank­ans.

Ingólfur kærði íslenska ríkið til dóm­stóls­ins vegna meintra brota á rétti hans til að velja sér verj­anda eftir að Hæsti­réttur stað­festi úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­víkur um að aft­ur­kalla skipun Jóhann­esar Bjarna Björns­sonar hæsta­rétt­ar­lög­manns, sem verj­anda Ingólfs. Var aft­ur­köll­unin studd þeim rökum að ekki væri úti­lokað að verj­and­inn yrði kvaddur til sem vitni í mál­inu þar sem ákæru­valdið hafði lagt fram í mál­inu end­ur­rit af hler­uðu sím­tali milli verj­and­ans og ann­ars sak­born­ings í mál­inu.

Í bréfi um nið­ur­stöðu MDE dags. 13. nóv­em­ber segir að dóm­stóll­inn hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þar sem mála­ferli þau sem kæran er sprottin af séu enn í gangi fyrir íslenskum dóm­stólum telj­ist inn­lend úrræði ekki tæmd líkt og áskilið sé í Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Ákvörð­unin er end­an­leg hvað varðar þá kæru sem send var MDE en sér­stak­lega er tekið fram í bréfi dóm­stóls­ins að unnt sé að senda nýja kæru þegar máls­með­ferð í máli ákæru­valds­ins gegn Ingólfi Helga­syni lýkur hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár