Pæling dagsins: Stefán og siðferðilegu spurningarnar um ójöfnuð

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Einn af helstu stuðn­ings­mönnum aðgerða stjórn­valda þegar kemur að lækkun verð­tryggðra skulda 28 pró­sent heim­ila er Stefán Ólafsson pró­fessor og stjórn­ar­for­maður Trygg­ing­ar­stofn­unar. Stefán er ekki síst þekktur fyrir hug­mynda­fræði­lega deilu sína við Hannes Hólm­stein Giss­ur­ar­son pró­fessor sem staðið hefur lengur en elstu menn muna. Þar takast á vinstri og hægri, einkum þegar kemur að mis­skipt­ingu auðs, oft harka­lega. Stefán hefur marg oft talað um að fyrir hrun hafi stjórn­völd, með Sjálf­stæð­is­flokk­inn í far­ar­broddi, stuðlað að mis­skipt­ingu auðs með stjórn­valds­að­gerðum, t.d. í gegnum skatt­kerfið. Meðal ann­ars hefur Stefán not­ast við Gini-stuð­ul­inn til að sýna fram á ójöfn­uð­inn.

Í ljósi þess að margir skjól­stæð­inga Trygg­ing­ar­stofn­unar, þar á meðal eigna­litlir öryrkjar og fólk á leigu­mark­aði, munu ekki fá neitt úr 80 millj­arða fjár­austri stjórn­valda úr rík­is­sjóði til sumra hús­næð­is­skuld­ara, og þannig aug­ljós­lega stuðla að ójöfnum tæki­færum fólks og ójöfn­uði með beinu pen­inga­fram­lagi, þá stendur Stefán frammi fyrir nokkuð stórum sið­ferði­legum spurn­ingum. Hann studdi aðgerðir stjórn­valda, en í þeim felst að þeir sem minna mega sín, og geta sumir ekk­ert gert að veik­indum sínum og erf­ið­leikum, fá enga aðstoð á meðan ríkt eigna­fólk fær millj­óna­að­stoð. Afleið­ingar þess að auka veð­rými mikið, munu birt­ast í hærra fast­eigna­verði og hærra leigu­verði, sem bitnar á þessum hópi, beint. Um þetta eru flestir sam­mála sem hafa greint þessi mál. Þessar aðgerðir eru meira inn­grip í þróun stétta­skipt­ingar hér á landi heldur en þekkst hefur und­an­farna tvo ára­tugi að mati margra. Hvaða mæli­stika mun ná utan um þennan ójöfnuð? Er hann æski­legur núna? Hvers vegna? Það verður for­vitni­legt að fylgj­ast með umræðu um þetta...

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár