Íslendingar elska H&M og Apple - 22 prósent fatainnkaupa í H&M

Alls versl­uðu rúm­lega 57% not­enda Meniga í Frí­höfn­inni á síð­asta ári. Að með­al­tali vörðu þeir tæpum 40.000 krónum í Frí­höfn­inni á árinu 2013. Það kemur ekki á óvart að hæsti tekju­hóp­ur­inn versl­aði bæði oftar og fyrir hærri upp­hæðir en sá tekju­lægsti, en tekju­hæsti hóp­ur­inn versl­aði að með­al­tali 4,8 sinnum í Frí­höfn­inni en sá tekju­lægsti 1,4 sinnum að með­al­tali. Árið 2013 varði tekju­hæsti hóp­ur­inn að með­al­tali rúm­lega 57.000 krónur í Frí­höfn­inni í sam­an­burði við tæpar 25.000 krónur hjá þeim tekju­lægsta.




Mikil fatakaup erlendis


Þá er einnig áhuga­vert að skoða hrifn­ingu land­ans á verslun í H&M. Tæp 37% not­enda Meniga versl­aði í H&M. Þó versla tekju­hærri hópar mun oftar en þeir tekju­lægri. Þannig versl­uðu 26% tekju­lægsta hóps­ins í H&M í sam­an­burði við 47% þeirra tekju­hæstu. Lítill sem eng­inn munur var á með­al­upp­hæð sem keypt var fyrir í hvert sinn eftir tekju­hópum, en hún var rúmar 15.000 krónur. Sama má segja um heild­ar­upp­hæð sem þeir vörðu í H&M á árinu 2013, en hún nam að með­al­tali 32.000 krónum.

H&M er langstærsta fataverslunin á íslandi


Sé hlut­deild í fata­verslun Meninga not­enda skoðuð sést þeir verja 22% fata­versl­unar sinnar í versl­unum H&M, en sú inn­lend verslun sem kemur næst er með 9% hlut­deild. Aðrar versl­anir eru með 5% hlut­deild eða minna. H&M er því langstærsta fata­verslun á Íslandi sem er einkar áhuga­verð stað­reynd þar sem H&M starf­rækir enga verslun á Íslandi.


Eplin í innkaupakörfu landans


Árið 2013 versl­uðu 3,7% Meniga­not­enda í versl­unum Apple erlendis. Einungis tæp­lega 2% tekju­lægsta hóps­ins versl­aði við Apple í útlöndum í sam­an­burði við rúm­lega 7% þess tekju­hæsta.

Að með­al­tali keyptu þeir vörur þar fyrir rúmar 77.000 krónum; tekju­lægsti hóp­ur­inn varði rúmum 58.000 en sá tekju­hæsti tæpum 90.000. Þess utan vörðu 16% Meniga­not­enda að með­al­tali tæpum 9.000 krónum í iTu­nes.

Það er ljóst að stór hluti Meniga­not­enda verslar í H&M en ver hæstu upp­hæð­unum í versl­unum Apple. Þá er áhuga­vert að velta fyrir sér ástæðum þess að fólk kýs að versla föt og raf­tæki erlendis. Nær­tæk­ast er að ætla að Meniga­not­endur beini verslun sinni þangað sem hún er hag­stæð­ust. Sé það rétt, er áhuga­vert að draga fram hvernig tekju­hóp­arnir hafa ólík tæki­færi að nýta sér þau lægri verð sem bjóð­ast í versl­unum erlendis. Þá er einnig ljóst að íslenska ríkið verður af tekjum vegna versl­unar Meniga­not­enda erlendis.

Ofan­greindar upp­lýs­ingar eru fengnar úr Meniga­hag­kerf­inu og unnar í sam­starfi Stofn­unar um fjár­mála­læsi og Meniga. Meniga hjálpar fólki að halda utan um fjár­mál heim­il­is­ins og er heild­ar­fjöldi not­enda um 40.000. Aldrei er unnið með per­sónu­grein­an­leg gögn í Meniga hag­kerf­inu. Nánari upp­lýs­ingar má finna á www.meniga.is og www.fe.is. Höfundur grein­ar­innar er for­stöðu­maður Stofn­unar um fjár­mála­læsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár