Umbúðir Norður Salts tilnefndar til verðlauna

Aug­lýs­inga­stof­an Jóns­son & Le’macks hefur hlotið til­nefn­ingu til alþjóð­legu hönn­un­ar­verð­laun­anna Epica vegna umbúða­hönn­unar fyrir íslenska sjáv­ar­saltið Norður Salt. Með til­nefn­ing­unni hafa umbúð­irnar nú verið til­nefndar til þriggja eft­ir­sótt­ustu hönn­un­ar­verð­launa heims, segir í til­kynn­ingu frá Jóns­son & Le’macks.

„Epica verð­launin hafa verið veitt í tæpa þrjá ára­tugi. Þau eru einu alþjóð­legu hönn­un­ar­verð­launin sem veitt eru af fjöl­miðlum og eiga rúm­lega fjöru­tíu tíma­rit, blöð og vef­fjöl­miðlar um heim allan sæti í dóm­nefnd. Norður Salt var í sumar til­nefnt til Cannes Lions hönn­un­ar­verð­laun­anna sem eru þau virt­ustu sem veitt eru fyrir hönnun í heim­inum. Umbúð­irnar fengu einnig Red Dot verð­laun fyrr á þessu ári sem þykja þau eft­ir­sótt­ustu sem veitt eru á sviði vöru­hönn­unar. Með Epica til­nefn­ing­unni hefur Norður Salt því verið til­nefnt til þriggja eft­ir­sótt­ustu hönn­un­ar­verð­launa heims á árinu. Umbúð­irnar hafa auk þess unnið til fjölda verð­launa og viður­kenn­inga á Íslandi, bæði í FÍT keppn­inni og Lúðrin­um,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Hönnuðir umbúð­anna eru Al­bert Muñoz, Sig­urður Odds­son og Þor­leif­ur Gunn­ar Gísla­son hjá Jóns­son & Le’macks, í sam­starfi við Jón Helga Hólm­geirs­son vöru­hönnuð og teikn­ar­ann Mark Sum­mers.

Norður­salt kom á markað í októ­ber 2013 og hef­ur unnið sér fast­an sess á borðum ís­lenskra kokka. Utan Íslands er Norður­salt nú fá­an­legt í gæða­versl­un­um í Berlín og er frek­ari sókn haf­in á mark­aði í Þýska­landi, á Norður­lönd­um, Ítal­íu, í Jap­an og Banda­ríkj­un­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár