Drápsvélmenni eyða mönnum innan 5 ára

Elon Musk, for­stjóri og eig­andi SpaceX og Tesla Motors, hræddi net­not­endur á dög­unum þegar hann skrif­aði athuga­semd við fram­tíð­ar­hug­mynda­síð­una Edge.com. Þar full­yrti hann að þróun gervi­greindar væri orðin svo hröð að vél­menni gætu hvað á hverju ákveðið að skyn­sam­legt væri að útrýma mann­kyn­inu.

„Hættan á að eitt­hvað svo stór­vægi­legt ger­ist er innan fimm ára tímara­mma,“ skrif­aði Musk og bætti við, til að koma í veg fyrir að net­verjar færu að draga hann í efa, að hann vissi nákvæm­lega hvað hann væri að segja. „Það er ekki eins og ég sé að kalla „úlfur, úlfur“ um eitt­hvað sem ég skil ekki.“

[quote font="0" align="right"]Það er ekki eins og ég sé að kalla „úlfur, úlfur“ um eitt­hvað sem ég skil ekki.[/quote]

Nokkrum mín­útum eftir að hann birti athuga­semd­ina á vefnum var henni eytt. Frá þessu er greint á vef Business Insider. Musk hefur nokkrum sinnum áður tjáð sig um hætt­una á að vél­menni snú­ist gegn mann­kyn­inu.

Á ráð­stefnu Vanity Fair í októ­ber ræddi Musk til að mynda um það hvernig gervi­greind mundi á end­anum ganga frá mann­kyn­inu. „Ég held að eng­inn átti sig á því hversu hratt stór skref eru stigin í þróun gervi­greindar, sér­stak­lega þegar litið er til véla sem eiga að sjá um sig sjálfar og bæta.“

„Ef verk­efni vélar er að eyða öllum rusl­pósti í tölvu­póst­hólf­inu, gæti vélin allt eins kom­ist að nið­ur­stöðu um að hægt væri að eyða rusl­pósti með því að eyða mann­fólki,“ sagði Musk á ráð­stefn­unni og bætti að lokum við að hann teldi Jarð­ar­búa ekki hafa neinar und­an­komu­leiðir, jafn­vel þó við myndum setj­ast að á Mars. „Nei, það er lík­legra en hitt, ef við horf­umst í augu við tor­tím­ingu, að vél­arnar fylgi okkur frá Jörðu.“

Viðtalið við Elon Musk á ráðstefnu Vanity Fair


[embed]https://www.youtube.com/watch?v=Ze0_1vczikA[/embed]

Athugasemd Musk í heild sinni


Undir færslu á Edge.com
The pace of progress in artificial intelligence (I'm not referr­ing to narrow AI) is incredibly fast. Unless you have direct expos­ure to groups like Deepmind, you have no idea how fast-it is growing at a pace close to exponential. The risk of somet­hing seriously dangerous happ­en­ing is in the five year tim­eframe. 10 years at most. This is not a case of crying wolf about somet­hing I don't und­er­stand.

I am not alone in think­ing we should be worried. The lea­d­ing AI companies have taken great steps to ensure safety. The recognise the dan­ger, but beli­eve that they can shape and control the digi­tal superintelligences and prevent bad ones from escaping into the Internet. That rema­ins to be seen...

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár