RÚV hefur fengið formlegt kauptilboð í lóð og hús félagsins

Stjórn­endum RÚV hefur borist eitt form­legt und­ir­ritað kauptil­boð í hús­næði og lóð félags­ins við Efsta­leiti. Þetta stað­festir Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri í sam­tali við Kjarnann. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er kauptil­boðið metið álit­legt innan stjórnar RÚV. Auk þessa hefur félag­inu borist óskir um form­legar sölu­við­ræður frá öðrum aðilum ýmist vegna húss­ins eða lóð­ar­innar, þar sem mögu­legt kaup­verð var viðrað.

Útvarps­stjóri vill hvorki upp­lýsa um fjár­hæð form­lega kauptil­boðs­ins né frá hverjum það hafi borist, og segir að ekki verði gengið til sölu­við­ræðna fyrr en ákvörðun um sölu eigna félags­ins liggur fyrir hjá stjórn RÚV. Engin form­leg ákvörðun hefur verið tekin í þeim efnum innan RÚV, en stjórn félags­ins fól sér­stakri hús­næð­is­nefnd síð­ast­liðið vor að hefja und­ir­bún­ing á sölu eigna. Til greina kemur að sam­hliða sölu á fast­eign­inni semji RÚV um leigu á hús­inu að hluta undir starf­semi félags­ins. Fjöldi áhuga­samra kaup­enda hefur sett sig í sam­band við RÚV eftir að til­kynnt var um mögu­lega sölu eigna félags­ins, meðal ann­ars helstu fast­eigna­þró­un­ar­fé­lög lands­ins.

Meta verðmæti lóðarinnar á einn til tvo milljarða króna


Eins og kunn­ugt er sam­þykkti borg­ar­ráð Reykja­vík­ur­borgar um miðjan októ­ber­mánuð síð­ast­lið­inn að end­ur­skipu­leggja lóð RÚV við Efsta­leiti undir íbúa­byggð. Borgin hyggst efna til skipu­lags­sam­keppni um lóðin í sam­vinnu við RÚV. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans verð­metur RÚV lóð­ina á einn til tvo millj­arða króna.

Verðmæti útvarps­húss­ins er metið á rúma þrjá millj­arða króna í bókum RÚV, en verð­mæti húss­ins er þar nokkuð van­á­ætlað sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Útvarps­stjóri vill ekki gefa upp hvaða verð­hug­myndir RÚV hafi varð­andi mögu­lega sölu húss­ins, en segir að ef ráð­ist verði í sölu eigna, verði sölu­ferlið gagn­sætt og opið.

Vaxta­ber­andi skuldir RÚV nema 5,5 millj­örðum króna, en slæma skulda­stöðu félags­ins má að miklu leyti rekja til líf­eyr­is­sjóðs­skuld­bind­inga úr fyrnd­inni. Útvarps­stjóri hefur sagt að sala eigna, það er Útvarps­húsið og lóð félags­ins við Efsta­leiti, og óskert útvarps­gjald úr rík­is­sjóði myndi rétta af rekstur RÚV. Þá þurfi ekki að hækka útvarps­gjaldið né hækka fjár­fram­lög rík­is­ins til félags­ins.

Skiptar skoð­anir eru á Alþingi varð­andi mögu­lega sölu Útvarpss­húss­ins. Á meðan sumir þing­menn hafa fagnað við­leitni RÚV til að bregð­ast við skulda­vand­anum, hafa aðrir þing­menn talað fyrir því að ríkið yfir­taki líf­eyr­is­skuld­bind­ingar félags­ins og létti þar með á skulda­stöðu RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár