SuitMe á Ólympíuleikum sprotafyrirtækja í Dortmund

Íslenska sprota­fyr­ir­tækið SuitMe keppir í dag í und­an­úr­slita­keppni í „Ólymp­íu­leikum sprota­fyr­ir­tækja”, Get in the Ring, í Dortmund í Þýska­landi. SuitMe fram­leiðir snjall­síma-app sem notar mynda­vél­ina á sím­anum og háþróuð mynd­grein­ing­aral­grím til að mæla lík­ams­stærð fólks, að því er segir í frétta­til­kynn­ingu, en fyr­ir­tækið var eitt tíu verk­efna í Startup Reykja­vík við­skipta­hrað­alnum í ár og fjall­aði Kjarninn meðal ann­ars um verk­efnið, en fyr­ir­tækið hefur þróað tækn­ina og starf­sem­ina enn meira frá þessum tíma.

https://vimeo.com/99788449

Yfir 2000 fyr­ir­tæki kepptu um sæti í Get in the Ring og SuitMe keppir nú fyrir hönd Íslands á móti Bret­landi, Hollandi, Þýska­landi, Danmörku og Belgíu. Sig­ur­veg­ar­inn á mánu­dag­inn fer áfram í alþjóð­legu úrslita­keppn­inni í Rott­er­dam á föstu­dag og keppir þar á móti efni­leg­ustu sprota­fyr­ir­tækjum heims. SuitMe er fyrsta sprota­fyr­ir­tækið sem keppir fyrir Íslands hönd í Get in the Ring.

[caption id="attachment_12206" align="align­right" width="202"] Sig­ur­laug Ósk­ars­dóttir.[/caption]

Markmið Get in the Ring er að setja sprota­fyr­ir­tæki sviðs­ljósið. Fyr­ir­tækin keppa inn­byrðis í fimm lotum í ein­hverju sem lítur út eins og hnefa­leika­hringur en sig­ur­veg­ar­inn er að lokum val­inn af fjár­festum, sem fylgj­ast með öllu saman.


Sig­ur­laug Ósk­ars­dóttir, ein stofn­enda SuitMe, segir í til­kynn­ingu Get in the Ring vera frá­bært tæki­færi til þess að efla tengsl, kynn­ast fjár­festum og kom­ast inn á alþjóða­svið með vör­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár