Fasteign hækkað um 65 prósent umfram lán en fá samt leiðréttingu

„Fast­eigna­verð hækk­aði um tugi pró­senta umfram verð­bólgu frá 2002 til 2005 og hjá stórum hópi var verð­bólgu­skotið 2008 og 2009 bara til að jafna það út. Sem dæmi má nefna að ein­stak­lingur sem keypti sína fyrstu fast­eign í júlí 2002 hefur horft á fast­eign sína hækka um tæp­lega 65% umfram lán en fær samt skulda­leið­rétt­ingu frá rík­is­sjóði“. Svona hefst grein eftir Boga Ragn­ars­son um skulda­nið­ur­fell­ingar rík­is­stjórn­ar­innar sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag.

Bogi birtir töflu með grein sinni sem sýnir ann­ars vegar hækkun fast­eigna­vísi­tölu og hins vegar hækkun vísi­tölu neyslu­verðs til verð­trygg­ingar á tíma­bil­inu júlí 2002 til sept­em­ber 2014. Tölurnar eru fengnar hjá Hagstofu Íslands og Þjóðskrá Íslands. Samkvæmt töflu Boga hafa allir sem keyptu sér fast­eign frá miðju ári 2002 og út árið 2004, og frá apríl 2009 og fram til dags­ins í dag, hagn­ast á kaup­unum. Þ.e. fast­eigna­verð hefur að með­al­tali hækkað umfram verð­trygg­ingu og virði fast­eigna því hækkað umfram hækkun lána.

[caption id="attachment_12199" align="alignnone" width="604"] Taflan sem birt­ist með grein Boga Ragn­ars­sonar í Morg­un­blað­inu.[/caption]

Þeir sem keyptu fyrstu fast­eign sína frá jan­úar 2005 til mars 2009, á 50 mán­aða tíma­bili, standa frammi fyrir því að vísi­tala neyslu­verðs til verð­trygg­ingar, og þar með verð­tryggð hús­næð­is­lán, hefur hækkað umfram visi­tölu fast­eigna­verðs, og þar með virði fast­eigna þeirra. Bogi segir í grein sinni að „ þá hefur fólk sem t.d. er með náms­lán, á leigu­mark­aði, með búsetu­rétt eða aðrir sam­bæri­legir hópar, sem margir eru í neðri lögum sam­fé­lags­ins, ekki fengið neinar leið­rétt­ingar og aldrei haft neinar eignir til að hækka á móti. Það er því aug­ljóst af ein­faldri sam­an­tekt að þeim fjár­munum sem deilt hefur verið út til stórs hluta almenn­ings er ekki vel varið.[...] Aðeins þeir sem keyptu fast­eignir í fyrsta sinn á þessu 50 mán­aða tíma­bili standa frammi fyrir því að vísi­tala neyslu­verðs hefur hækkað umfram vísi­tölu fast­eigna­verðs. Þeir aðilar sem keyptu eignir frá 2005 til 2008 hafa vissu­lega orðið fyrir miklum for­sendu­bresti þar sem lánin þeirra hafa hækkað frá 24% upp í 38% umfram hækkun fast­eigna­verðs. Í mörgum þeirra til­fella er ólík­legt að nið­ur­færslan sé nægj­an­lega mikil til að hjálpa þeim að eign­ast jákvætt eigið fé í sínum eignum."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár