Úr ríki brosanna

Þorgeir Tryggva­son, Toggi, mun sinna bókaum­fjöllun fyrir Kjarnann fram að jólum en margar bækur eru að koma út þessa dag­ana. Jóla­bóka­flóðið nær svo hámarki í des­em­ber.

Afríka - ást við aðra sýn

Höfundur: Stefán Jón Hafstein

Útgef­andi: Ísland ehf.

Ætti kannski að skikka menn sem fara erinda á borð við þau sem Stefán Jón Hafstein fór til Afríku að gera grein fyrir sér með ein­hverjum svona hætti í máli og myndum?

Kannski ekki, það eru svo sann­ar­lega ekki allir jafn rit­færir, jafn flinkir með mynda­vél­ina eða eins snjallir að skafa utan af og miðla kjarna máls­ins. Senni­lega yrðum við fljótt áhuga­laus og pirruð á skýrslu­gerð­inni.

Það er mjög auð­velt að gera mann pirraðan og áhuga­lausan þegar lýst er yfir­þyrm­andi ástandi í fjar­lægum heims­hlutum. Fylla mann ófrjórri sekt­ar­kennd og/eða bræði yfir vonsku heims­ins, heimsku kap­ít­al­ism­ans og afskipta­leysi Guðs. Öllu snún­ara er að gefa til­finn­ingu fyrir raun­særri sýn sem þó neitar að gef­ast upp án þess að kalla bein­línis eftir bylt­ingu.

Það tekst Stefáni. Afríka – ást við aðra sýn er stundum sjokker­andi, aldrei til­finn­inga­klám­fengin en alltaf vekj­andi.

Samt: Afríka? Stefán sýnir á skýran hátt og leggur útaf því hvernig hin ill­ræmda Mercator-vörpun hefur blekkt okkur um stærð álf­unnar (hún er stærri en hún virð­ist á kortum og þið haldið), en á sama tíma smættar hann hana niður með því að byrja of margar setn­ingar á „Afríka er“, með því að alhæfa um álf­una alla út frá viða­mik­illi reynslu sinni í Namibíu og Malaví og ferða­lögum annað. En Túnis og Tansanía, Tsjad og Svasíland, Gana og Sómalía. Af hverju ekki bara að sýna hinni risa­stóru álfu þá virð­ingu að nota nafn hennar aðeins spar­legar?

Þegar Stefán beinir sjónum sínum að til­teknum stöðum, stað­bundnum aðstæðum, vanda­málum og mögu­leikum, er hann bestur.

Einn besti kafl­inn er sá sem útlistar stöðu hinna sára­fá­tæku og mögu­leika þeirra til að brjót­ast út úr stöðu sinni Sem eru væg­ast sagt þröngir, og Stefáni tekst mjög vel að skýra hvernig stigs­munur getur orðið eðl­is­munur á jöðrum vel­meg­un­ar­kvarð­ans. Eins eru end­ur­teknar hug­leið­ingar um grund­vall­ar­mik­il­vægi mennt­unar og undir hvað högg hún á að sækja í hefð­bundnum hung­ur­marka­sam­fé­lögum frá­bærir textar. Og þung­bærir.

Stefán notar sam­an­burð við Ísland óspart, ekki síst til að tengja tíma­setn­ingu sögu­legra atburða við eitt­hvað sem við þekkjum. Þetta er oft­ast gagn­legt, kannski magn­að­ast þegar Stefán svið­setur nýlendu­tím­ann og afleið­ingar hans á Íslandi:

„Ímyndum okkur að Ísland hefði hlotið svipuð örlög í stað­inn fyrir stjórn­ar­skrá frá Dönum á síð­ari hluta nítj­ándu aldar. Bretar tekið Aust­ur­land, sett land­stjóra, skipt út gömlu sýslu­mönn­unum og hrepp­stjór­unum og skipað nýja for­rétt­inda­stétt. … Þjóð­verjar hefðu tekið Suð­ur­land, sent hingað þús­und bændur og látið taka bestu sveit­irnar og býlin fyrir sjálfa sig en ýtt hinum hokrandi Íslend­ingum sem ekk­ert kunnu til verka út á Reykja­nesskaga.“

Rit­stjóri hefði hins­vegar átt að stoppa hann af í kafl­anum um dýrin í Ethosa-friðland­inu og benda honum á lík­inga­málið þar væri alls ekki að vinna vinn­una sína.

Eins hefði hann átt að láta höf­und­inn skrifa mynda­texta við hinar fjöl­mörgu og frá­bæru myndir sem prýða bók­ina. Mynd segir meira en þús­und orð (sem er rangt, reyndar) en vel skrif­aður mynda­texti hækkar gildi hennar um allan helm­ing.

Þetta er fín bók. Fólk þarf að vera fjári vel upp­lýst til að verða ekki betra fólk af því að lesa og skoða þessa vel skrif­uðu, vel hugs­uðu, vel mynd­uðu og vel meintu skýrslu.

Gefðu Afríku. Hún er um fram­tíð­ina. Allir geta tekið krimmana á bóka­safn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár