Adolf Ingi stofnar útvarpsstöð fyrir erlenda ferðamenn

Íþrótta­f­rétta­mað­ur­inn Adolf Ingi Erlings­son vinnur nú að stofnun nýrrar útvarps­stöðvar á Íslandi, sem verður ætluð erlendum ferða­mönnum. Adolf Ingi hefur stofnað einka­hluta­fé­lag utan um rekst­ur­inn sem fékk úthlutað útvarps­leyfi í vik­unni, en nýja útvarps­stöðin kemur til með að heita Radio Iceland FM.

Adolf Ingi hefur und­an­farna mán­uði unnið að stofnun útvarps­stöðv­ar­innar, eða allt frá því að hug­myndin kvikn­aði. "Systir mín kom keyr­andi frá Höfn í Horna­firði norður til Akur­eyrar í sumar, þar sem við vorum í sum­ar­bú­stað fjöl­skyld­unnar. Þegar hún var komin norður sagði hún: „Veistu hvað vantar? Það vantar útvarps­stöð fyrir ferða­menn­ina!“ Þar með kvikn­aði hug­myndin, sem hljóm­aði ágæt­lega til að byrja með, en svo eftir því sem við ræddum þetta meira þá fannst okkur hún alltaf bara verða betri og betri,“ segir Adolf Ingi í sam­tali við Kjarnann.

Á útvarps­stöð­inni verður í boði fræðsla, skemmtun og fréttir á klukku­tíma fresti, að sögn Adolfs Inga, en allt efni verður á ensku og þá verður ein­vörð­ungu spiluð íslensk tón­list. Þá verða búnir til sér­stakir þættir fyrir mis­mun­andi svæði og staði á Íslandi sem eru áhuga­verðir fyrir ferða­menn að heim­sækja.

[caption id="attachment_12011" align="aligncenter" width="458"] Ein­kenn­is­merki nýju útvarps­stöðv­ar­innar.[/caption]

Mikið ævintýri og mjög metnaðarfullt verkefni


Adolf Ingi á í við­ræðum við efn­aðan fjár­festi í ferða­þjón­ustu um aðkomu hans að verk­efn­inu, sem kostar nokkra tugi millj­óna að hans sögn. Nú stendur yfir leit að heppi­legu hús­næði undir starf­sem­ina og manna­ráðn­ingar eru komnar á fullt, en Adolf Ingi gerir ráð fyrir sjö til átta stöðu­gildum til að byrja með. Þá eru sömu­leiðis hafin kaup á nauð­syn­legum tækja­bún­aði.

„Þetta er heil­mikið ævin­týri og mjög metn­að­ar­fullt verk­efni. Við ætlum að ná til ferða­manna þar sem þeir eru að ferð­ast um landið á bíla­leigu­bíl­unum eða sínum einka­bílum, og þess vegna þarf að byggja upp dreifi­kerfi fyrir stöð­ina og það kostar tugi millj­óna króna. Til að byrja með reikna ég með að vera með fimmtán senda víðs­vegar um landið og það hefur bara held ég engin útvarps­stöð farið í jafn loftið með jafn mikla dreif­ingu og við stefnum að til að byrja með. Ég held að bara Rás 2, Rás 1 og Bylgjan séu með meiri dreif­ingu.“

Adolf Ingi stefnir að því að útvarps­stöðin hefji útsend­ingar 1. febr­úar næst­kom­andi ef allt gangi að óskum. „Þetta er stórt dæmi, og miklu stærra dæmi en maður gerði sér grein fyrir til að byrja með. En það er með þetta eins og allt annað, eins og að ráð­ast í fram­kvæmdir heima hjá sér eða byggja sum­ar­bú­stað, ef maður hefði gert sér grein fyrir umfangi verk­efn­is­ins áður en maður fór af stað, þá hefði maður trú­lega aldrei farið af stað,“ segir Adolf Ingi og hlær.

Til að byrja með munu útsend­ingar Radio Iceland nást á Suð­vest­ur­horni lands­ins, á Suð­ur­landi austur á Höfn, á Egils­stöðum, Húsavík, í Eyja­firði, Skaga­firði og Borg­ar­nesi og yfir á suð­ur­strönd Snæ­fells­ness.

Spennandi tækifæri fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu


Adolf Ingi hefur miklar vænt­ingar til nýju útvarps­stöðv­ar­innar, en tekjur hennar verða byggðar á aug­lýs­inga­sölu og seldum umfjöll­unum. „Ég held að þetta sé mjög spenn­andi kostur fyrir aðila í ferða­þjón­ustu, því þarna gefum við þeim leið til að ná til ferða­manna á meðan þeir eru hér á landi. Það hefur verið vanda­mál í mark­aðs­setn­ingu að ná til ferða­mann­anna, því að þegar þeir koma til lands­ins þá eru þeir svo­lítið týndir. Stór hluti þeirra ferð­ast um landið á eigin vegum, á bíla­leigu­bílum og einka­bílum, en þar ætlum við að ná til þeirra með útvarps­út­send­ingum, sem eru sér­stak­lega ætl­aðar fyrir þá, til að vekja áhuga þeirra á landi og þjóð, fræða þá og síðan er þetta hrein­lega örygg­is­tæki líka,“ segir Adolf Ingi.

„Það hefði til dæmis munað tölu­verðu að hafa svona útvarps­stöð til að ná til erlendra ferða­manna þegar eld­gosið í Holu­hrauni skall á, þá hefði verið hægt að nota þennan ventil til að vara þá við. Eins líka þegar það eru við­var­anir út af veðri, flóðum eða hverju sem er. Þarna eiga þeir að geta fengið upp­lýs­ingar um allt sem þá varðar um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár